Íslensk hjón, Árni Birgisson og Inga Snorradóttir, urðu vitni að hræðilegum atburði úti í Alanya, útborg Antalya, í Tyrklandi í gærkvöld. Eru þau sátu á veitingastað og biðu eftir matnum sínum var maður myrtur inni í verslun hinum megin við götuna. Hinn myrti var borinn út úr versluninni, með stungusár á höfði stjörf augu. Hræðileg sjón sem hjónin eiga erfitt með losna við úr huganum.
„Við vorum búin að ganga framhjá þessari verslun og ætluðum að kíkja inn síðar. En við sátum þarna og vorum að bíða eftir vinafólki okkar. Veitingastaðurinn akkúrat hinum megin við götuna. Allt í einu varð uppi fótur og fit. Fólk reif mótorhjól frá staðnum til að rýma fyrir sjúkrabíl. Sjúkraflutningafólkið hljóp inn og bar manninn út, ekki á börum, heldur í einhvers konar opnum poka,“ segir Árni, en hann og Inga voru að hitta norsk vinahjón sín á veitingastaðnum.
Fjölmargir urðu vitni að þessu, meðal annars börn, og ekkert var gert til að hylja hinn látna, sem augljóslega hafði verið skorinn á háls og augu hans voru stjörf. „Hann var borinn út fyrir allra augum, alblóðugur og með skurð á hálsinum,“ segir Árni.
Hinn grunaði morðingi er í haldi lögreglunnar. „Þeir náðu hinum seka stuttu síðar. Það kom í ljós að hann hafði tekið niður öryggismyndavélar í versluninni, ætlaði að fjarlægja sönnunargögn, en þetta kemur fram í fréttum um málið,“ segir Árni. Fjallað er um málið í staðarmiðli sem birtir fréttir á ensku. Sjá hér Þar kemur fram að mennirnir, hinn myrti og hinn grunaði morðingi, voru áður viðskiptafélagar og áttu í deilum. Einnig kemur fram að hinn grunaði var handtekinn í strætisvagni í nágrenninu skömmu eftir voðaverkið. Málið er í rannsókn.
„Þetta var mjög óhugnanlegt. Dóttir hins myrta, kona líklega um 25 ára, kom á vettvang og hún var öskrandi og grátandi og einhver maður tók hana í fangið. Mér leið eins og ég væri stödd í einhverri bíómynd,“ segir eiginkona Árna, Inga Snorradóttir.
Hún lýsir því jafnframt að þjónninn þeirra á veitingastaðnum hafi komist að því hvað gerðist og þau hafi fengið fyrstu fréttir frá honum. „Þjónninn hljóp yfir götuna og þegar hann kom til baka gerði hann merki með fingrinum yfir hálsinn um að maðurinn hefði verið skorinn á háls.“
Árni og Inga segi að þau hafi aldrei órað fyrir því að þau myndu nokkurn tíma verða vitni að öðru eins. Þau hafa búið í Noregi, í Álasundi, síðan í hruninu, eða í um 13 ár, og hefur vegnað vel í Noregi. „Við fluttum hingað í land allsnægtanna í hruninu og okkur hefur liðið vel í Noregi,“ segir Árni.
Þau segja að mjög algengt sé að Norðmenn ferðist til Tyrklands í sumarfríum og margir eigi íbúðir á svæðinu. Þá spillir ekki fyrir að beint flug er frá Álasundi til Antalya. Segja þau að húsakostur, hótelíbúðir og hótelherbergi séu fyrsta flokks í Alanya. Þjónusta sé líka hvarvetna fyrsta flokks.
Hjónin telja að atvikið muni ekki hafa alvarleg sálræn áhrif á þau og reyna að taka því af æðruleysi. „Við liggjum bara á ströndinni í dag og reynum að hugsa ekki um einhvern óhugnað,“ segir Inga.