Um klukkan 18 að staðartíma heyrðust skothljóð í verslunarmiðstöðinni Fields í Kaupmannahöfn. Samkvæmt dönsku lögreglunni var um skotárás að ræða en í færslu sem lögreglan birti á Twitter-síðu sinni segir að nokkrir einstaklingar hafi verið skotnir.
Í myndum frá svæðinu má sjá marga sjúkrabíla og hóp af vopnuðum lögreglumönnum sem. Lögreglan hefur lokað svæðinu í kringum verslunarmiðstöðina og lögregluþyrla sveimar yfir svæðinu. Fólk hefur verið beðið um að halda sig fjarri en þau sem eru stödd inni í verslunarmiðstöðinni hafa verið beðin um að halda sig kyrr þar til lögreglan kemur.
DR ræddi við Laurits Hermansen sem var staddur í verslunarmiðstöðinni ásamt fjölskyldunni sinni þegar þau heyrðu skothljóðin. „Við vorum þarna með þremur ungu börnunum okkar og vorum að máta föt í H&M þegar við heyrðum þrjú eða fjögur skothljóð, mjög hávær. Það hljómaði eins og skothljóðin væru að koma við hliðina á fyrstu hæð verslunarinnar. Svo kom fólk hlaupandi inn í búðina og öskraði: „þetta eru skot, þetta eru skot“,“ segir Hermansen en hann og fjölskylda hans náðu að komast út í gegnum neyðarútgang.
„Við vorum að sjálfsögðu hrædd um að einhver myndi standa og bíða eftir okkur við útganginn en við náðum að komast í bílinn okkar og keyra í burtu. Það var þá sem við sáum lögregluna koma.“
Þá ræddi DR einnig við konu að nafni Karina Ulfkær en dóttir hennar var stödd í verslunarmiðstöðinni þegar skothríðin átti sér stað. „Hún hringdi í mig og sagði: „Mamma, þeir eru að skjóta, þeir eru að skjóta.“ Hún grét og grét,“ segir Karina.
Nú liggur fyrir að unglingsstúlka er látin eftir árásina. Árásarmaðurinn var vopnaður riffli.
Árásarmaðurinn er í haldi lögreglu en hann gafst upp fyrir lögreglu eftir að skotið hafði verið viðvörunarskotum að honum.
Öll sjúkrahús í Kaupamannahöfn eru á hæsta viðbúnaðarstigi og starfsfólk hefur verið kallað úr fríum til að hlúa að þeim sem eru særðir eftir árásina. Fjöldi þeirra liggur ekki fyrir.
Eitt staðfest lát liggur fyrir eftir árásina og þrír eru á gjörgæslu. Fleiri gætu hafa látist. Hinn handtekni er 22 ára gamall Dani. Ekki liggur fyrir hvort fleiri hafi verið að verki. Lögregla útilokar ekki hryðjuverk.
Móðir unglingsstúlku sem lét lífið í árásinni var skotin í læri og bak. Konan er enn lifandi. – Víðtækar lögregluaðgerðir um nær allt land og leyniþjónusta hefur einnig blandað sér í rannsóknina.