fbpx
Miðvikudagur 19.mars 2025
Fréttir

Orkan einfaldar lífið á ferðalaginu í sumar

Ritstjórn DV
Föstudaginn 1. júlí 2022 13:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ferðapakki Orkunnar er nú kominn á þjónustustöðvar Orkunnar um allt land. Með því að skrá þínar 4 ferðavikur og sýna dælulykilinn á næstu þjónustustöð geta viðskiptavinir Orkunnar fengið ferðapakkann beint í bílinn fyrir ferðalagið.

„Það geta eflaust margir tengt við að vera á ferðalagi með fjölskylduna en vilja ekki missa öll bönd á snjallsíma og ipad notkun. Okkar markmið með ferðapakkanum er að einfalda líf viðskiptavina á ferðalaginu og bjóða upp á skemmtilega afþreyingu til að stytta sér stundir í bílnum og vekja áhuga á ævintýrunum sem liggja allt um kring,“ segir Brynja Guðjónsdóttir, markaðsstjóri Orkunnar.

Í ferðapakkanum er ferðalúdó þar sem peðin eru með segul svo þau hlaupi ekki sjálf af stað á ferðinni og dýraspjöld sem hægt er að skreyta með límmiðum. Það er alltaf gott að hafa smá nasl í bílnum og býður ferðapakkinn upp á drykki og hollt nasl fyrir stóra sem smáa. Ferðapakkinn kemur í sundpoka sem hægt er að endurnýta.

Ferðakort Orkunnar er einnig í ferðapakkanum en mikilvægt er að það rati í réttar hendur. Þar er að finna mjög mikilvægar upplýsingar fyrir skemmtanastjórann í bílnum og hvernig er hægt að halda jákvæðri orku á ferðalaginu.  Praktískar upplýsingar sem má finna á kortinu eru Orkustöðvar um allt land, rafhleðslustöðvar og ferðakaffibollinn sýnir hvar er að finna þjónustustöðvar um allt land sem bjóða frítt kaffi með Orkulyklinum.

„Ferðakortið er ævintýraheimur og er ekkert skemmtilegra en að gera það að sínu eigin með því að teikna inn ferðalagið og áhugaverða staði sem eru eftirminnilegir. Þegar ferðalaginu lýkur er síðan hægt að búa til skutlu úr ferðakortinu og sjá hver flýgur lengst,“ bætir Brynja við.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Garpur: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum“

Garpur: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum“
Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Fundu 30 ára uppsafnaðan forhúðarost hjá giftum manni – Óbærileg fýla á læknastofunni

Fundu 30 ára uppsafnaðan forhúðarost hjá giftum manni – Óbærileg fýla á læknastofunni
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Þykir ekki mikið til skýringa Rósu koma – „Óskýrara verður orðasalatið varla“

Þykir ekki mikið til skýringa Rósu koma – „Óskýrara verður orðasalatið varla“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Taldi að hættulegur maður væri kominn til Bolungarvíkur – Lögreglumenn voru reiðubúnir að grípa til vopna

Taldi að hættulegur maður væri kominn til Bolungarvíkur – Lögreglumenn voru reiðubúnir að grípa til vopna
Fréttir
Í gær

Formaðurinn fékk 280.926 krónur á tímann – Aðrir með 187 þúsund á tímann

Formaðurinn fékk 280.926 krónur á tímann – Aðrir með 187 þúsund á tímann
Fréttir
Í gær

Verktakar og birgjar sameinast um stuðning við UMFG

Verktakar og birgjar sameinast um stuðning við UMFG