Refsiaðgerðirnar eru tilkomnar vegna innrásar Rússa í Úkraínu. En eftir því sem Bloomberg segir þá hafa rússnesk flugfélög fundið leið framhjá þessum refsiaðgerðum í gegnum Tyrkland. Þetta á meðal annars við um flugfélögin Nordwind Airlines og Azur Air. Þau eru bæði með bækistöð í Rússlandi er heyra undir stærri félög sem tyrkneskir fjárfestar stýra.
Með því að láta móðurfélögin stofna ný dótturfélög eða alveg nýtt flugfélag í Tyrklandi geta Nordwind og Azur tekið flugvélar á leigu á löglegan hátt á nýjan leik og orðið sér úti um varahluti. Þetta geta ríkisreknu flugfélögin Aeroflot og Rossiya hins vegar ekki.
Tyrkir hafa einir NATÓ-ríkja ekki gripið til refsiaðgerða gegn Rússland og því er þessi leið opin fyrir rússnesku félögin.
Eftir því sem segir á bloggsíðunni „Live and Lets Fly“ þá hefur Nordwind nú þegar átt í viðræðum um leigu á flugvélum fyrir nýtt félag, væntanlega undir nafninu Southwind.
Hvorki Nordwind né Azur hafa staðfest þessar fréttir. Ef af þessu verður er ólíklegt að tyrknesk yfirvöld muni stöðva þetta að sögn Jótlandspóstsins. Tyrkir fari ekki leynt með áhuga sinn á að fá rússneskt fjármagn inn í landið. Samkvæmt fréttum tyrkneskra fjölmiðla íhuga mörg rússnesk fyrirtæki, þar á meðal Gazprom, að flytja evrópsku höfuðstöðvar sína til Tyrklands.
En það sem er kannski einna mikilvægast fyrir Tyrki er að Rússar eru stærsti og mikilvægasti hópur þeirra ferðamanna sem koma til landsins. 2019, síðasta árið fyrir heimsfaraldurinn, komu sjö milljónir Rússa til landsins. Tyrkir hafa mikla þörf fyrir rússneska ferðamenn því gjaldmiðill landsins hefur verið í frjálsu falli og verðbólgan er rúmlega 70%.