Luiza Klaudia Lárusdóttir er 44 ára gömul pólsk kona sem búið hefur á Íslandi frá árinu 1998. Árið 2007 lenti hún í slysi er hún var farþegi í bíl og hefur upp frá því verið öryrki. Býr hún í húsnæði fyrir öryrkja í Hátúni 10 í Reykjavík.
Fyrir skömmu var brotist inn í bíl Luizu fyrir utan heimili hennar, verðmætum stolið og skemmdir unnar. Tjónið metur Luiza á um 100 þúsund krónur, sem eru miklir peningar fyrir örykja, en auk þess hefur málið valdið henni margvíslegum óþægindum og erfiði.
„Þetta er innrás inn í einkarýmið mitt og tilfinningin er mjög óþægileg. Ég hef átt erfitt með að sofna undanfarið út af þessu. Hann tók allt sem hann gat tekið, meira að segja smurbók bílsins, sem er mjög óþægilegt.“
Meðal þess sem þjófurinn tók úr bílnum var myndbandsupptökuvél (Camcorder) af dýrari gerðinni og er tjónið bagalegt. „Þegar ég lenti í slysinu árið 2007 voru erfiðleikar að finna út úr því hver hefði valdið slysinu. Upp á framtíðina hef ég gætt þess að hafa svona tæki í bílnum sem tekur allt upp,“ segir Klaudia og vill gjarnan koma raðnúmeri búnaðarins á framfæri ef þjófurinn reynir að koma honum í verð. Númerið er: 200207325
Þeir sem gætu haft upplýsingar um myndavélina eða annað sem viðvíkur innbrotinu eru beðnir um að hafa samband við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444 1000.
„Hann borðaði meira að segja í bílnum, ég sá áhöld og leifar eftir hann.“ Því miður skildi þjófurinn einnig eftir opna flösku af hreinsiefni í gólfi bílsins og þurfti Luiza að kosta hreinsun á bílnum vegna þess upp á 8 þúsund krónur.
Meðal þess sem þjófurinn tók voru tvær innkaupatöskur á hjólum, sem hafa verið Luizu mikil hjálparhella við innkaup en hún getur ekki borði þunga innkaupapoka í höndunum, síst af öllu upp stiga. Svo gleðilega vildi til að pólsk hjón sem fréttu af vandræðum Luizu gáfu henni eina samskonar tösku:
Luizu var tjáð af tryggingafélaginu hennar að eigin ábyrgð hennar vegna málsins væri 35.700 krónur. Það er hún afar ósátt við. „Það er út af svona sem svo margt fólk hættir að borga tryggingar.“
Luiza segir að innbrot og afbrot í kringum Hátún 10 séu algeng, sérstaklega innbrot í bíla. Segist hún vita um fimm slík tilvik undanfarnar vikur. „Við ræddum þetta á húsfundi og ein sagði frá því að að fartölvunni hennar hefði verið stolið úr bílinn og annar að bíllinn hans hefði verið rispaður. Ég myndi vilja að lögreglan væri stundum með eitthvert eftirlit hérna í nágrenninu en þeir koma aldrei hingað.“