Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Eimskips, Hilmar Pétur Valgarðsson, var í dag boðaður í skýrslutöku hjá héraðssaksóknara vegna rannsóknar á sölu skipanna Goðafoss og Laxfoss árið 2019, sem Umhverfisstofnun kærði til héraðssaksóknara árið 2019. Hann nýtur réttarstöðu sakbornings við skýrslutökuna.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem Eimskip sendi Kauphöll Íslands í kvöld.
Þar segir ennfremur að forstjóri félagsins, Vilhelm Már Þorsteinsson, muni gefa skýrslu hjá embættinu í þágu málsins en hann sé ekki grunaður um refsiverða háttsemi.
Í tilkynningunni segir: „Eimskip telur sig hafa fylgt í einu og öllu lögum og reglum í þessu söluferli og seldi skipin til áframhaldandi rekstrar en ekki til endurvinnslu. Félagið mun eftir sem áður leitast við að veita héraðssaksóknara allar þær upplýsingar sem um er beðið.“
Húsleit hjá dótturfélagi í Danmörku
Um átta mínútum seinna sendi Eimskip svo aðra tilkynningu til Kauphallarinnar þar sem segir að í dag hafi danska samkeppniseftirlitið framkvæmt húsleit í Álaborg hjá dönsku dótturfélagi Eimskip Holding B.V., sem er í eigu Eimskipafélags Íslands, á grundvelli dómsúrskurðar.
„Húsleitin snýr að starfsemi Atlantic Trucking sem er hluti af Eimskip Denmark A/S og er hluti af rannsókn á háttsemi í landflutningum í Danmörku og tók til fleiri félaga á þeim markaði. Tilgangur húsleitarinnar er að rannsaka hvort brotið hafi verið gegn ákvæðum danskra samkeppnislaga,“ segir í tilkynningunni.
Þar kemur einnig fram að dótturfélagið vinni að því að veita dönskum samkeppnisyfirvöldum aðgang að umbeðnum upplýsingum.
„Eimskipafélag Íslands hf. hefur ekki ástæðu til að ætla að brotið hafi verið gegn dönskum samkeppnislögum í starfsemi Atlantic Trucking sem hefur um 5% markaðshlutdeild í gámaflutningum á þessum markaði,“ segir í þessari seinni tilkynningu.