Frá kl.17.00 í gær til 05.00 voru 115 mál skráð í dagbók lögreglu og alls voru fjórir einstaklingar vistaðir í fangageymslum. Þá var nokkuð um tilkynningar vegna hávaða enda víða verið að fagna námsáföngum. Alls voru þrjár tilkynningar um minniháttar líkamsárásir í miðborginni.
Um kvöldmatarleytið var reiðhjólaslys í miðbænum þegar maður datt af reiðhjóli og slasaðist á mjöðm og víðar. Hann var ekki með hjálm og kvartaði undan miklum höfuðkvölum og sjóntruflunum. Var hann fluttur á bráðadeild til aðhlynningar.
Um kl.21 voru afskipti höfð af 55 ára gömlum ökumanni vespu í miðbænum sem hafði ekið um með 5 ára barn sem farþega. Móðir barnsins hafði ekki gefið leyfi fyrir þessu og var barnið ekki með neinn öryggisbúnað. Ökumaðurinn var handtekinn grunaður um ölvun við akstur og var hann laus að lokinni sýnatöku.
Rétt fyrir miðnætti var maður í annarlegu ástandi handtekinn á stigagangi íbúðarhúsnæðis, hverfi 108. Maðurinn var á nærbuxum og sokkum einum klæða. Maðurinn er talinn hafa brotið rúðu og mögulega skemmt barnareiðhjól ofl. Maðurinn var vistaður sökum ástands í fangageymslu lögreglu.
Þá er lögreglan farin að taka hart á notkun nagladekkja og voru nokkur slík tilvik skráð í dagbók lögreglu. Einn aðili var stöðvaður á aðeins þremur nagladekkjum í Hafnarfirði.
Þá voru því miður fjölmörg tilvik þar sem ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða annarra fíkniefna.