Farþegaferjan Baldur varð vélarvana á Breiðafirði, skammt fyrir utan Stykkishólm, í morgun. Til stóð að flytja þá sem voru um borð í ferjunni aftur í land með farþegaskipinu Særúnu rétt fyrir 11 en við það var hætt og þess í stað ákveðið að losa akkeri Baldurs reyna að koma ferjunni til hafnar.
Mbl.is ræddi við Gunnlaug Grettisson, framkvæmdastjóra Sæferða, sem segir að allt virðist vera virka eins og það eigi að virka. Báturinn Björg sé á leiðinni frá Ólafsfirði til að koma til móts við Baldur og ef allt gengur vel munu Björg og Baldur sigla saman til hafnar.
Bilunin kom upp aðeins nokkrum mínútum eftir að ferjan lagði frá höfn klukkan níu í morgun. Akkeri var sett út í kjölfarið og Landhelgisgæslu gert viðvart auk björgunarsveitarinnar á Stykkishólmi.
Um borð eru 102 farþegar, níu manna áhöfn, 32 bílar og tvö mótorhjól.
Gunnlaugur sagði í samtali við Vísi að allir séu sammála um að nýtt skip þurfi í Breiðafjörð. Hann tók þar einnig fram að svo virðist sem að bilunin sé ekki lengur til staðar.