Við greindum frá því í gær að kona varð fyrir húsbroti og hrottalegri árás af hendi fyrrverandi vinar síns fimmtudaginn 2. júní. Maðurinn var handtekinn daginn eftir en látinn laus í gær þar sem málið var ekki talið nógu alvarlegt til að þörf væri fyrir lengra gæsluvarðhald. Konan sem varð fyrir árásinni er hins vegar lömuð af ótta yfir því að árásarmaður hennar gangi laus.
Í frétt DV í gær kom fram að árásarmaðurinn hefur verið ákærður fyrir aðra líkamsárás og mun koma fyrir dóm vegna hennar í október. Um var að ræða vinkonu fyrrverandi unnustu árásarmannsins og árásin var gerð í tilefnislausu afbrýðsemikasti. Var þetta þann 17. desember 2021.
Konan sem varð fyrir þeirri árás heitir Birna Karen Þorleifsdóttir. Birna er hugrökk og ófeimin við að stíga fram með málið í fjölmiðli undir nafni og myndum. Veitti hún DV aðgang að ljósmyndum sem sýna áverka hennar eftir árásina, sem og myndbandi af árásinni, sem tekið var upp á öryggismyndavél í íbúð hennar, og er eitt helsta sönnunargagnið í málinu gegn árásarmanninum.
„Ég keypti mér öryggismyndavél í einhverju flippi og síðan gerist þetta!“ segir Birna Karen í viðtali við DV vegna málsins.
„Ég var bara að tjilla með vinkonu minni sem ég hafði ekki hitt lengi og við vorum að taka upp TikTok vídeó, en hann var eitthvað að rífast við hana í símanum. Hann beið síðan fyrir utan hurðina hjá mér. Þegar ég hleypi henni út ryðst hann inn og byrjar að kýla mig.“ – Birna segir að ofbeldismaðurinn hafi ætlað að rífa í hár hennar og slá henni utan vegginn en hún hafi þá verið með gervihár sem hann greip í og stóð með gervihárabrúskinn í höndunum.
„Hann ryðst inn og byrjar að kýla mig í gólfið. Ég var með gervihár og hann ætlaði svoleiðis að smalla mér í vegginn.“ Birna segir að maðurinn hafi kýlt sig með hnúajárnum.
Birna segist hafa verið í losti eftir árásina og því hafi hún ekki hringt í lögregluna fyrr en mörgum klukkustundum síðar. Hún þurfti að fara á sjúkrahús vegna áverkanna en hefur náð sér líkamlega í dag. Hún er hins vegar enn að glíma við andlegar afleiðingar árásarinnar og er t.d. hrædd við að vera ein heima hjá sér. Árásin átti sér stað í desember 2021.
Myndbandið úr öryggismyndavél Birnu er í spilaranum hér fyrir neðan: