Daily Mail segir að því hafi verið haldið fram að rússnesk yfirvöld hafi skýrt frá falli Kutuzov til að reyna að fela fall Berdnikov sem er mun frægari og mikilvægari hershöfðingi.
Hershöfðingjarnir eru sagðir hafa fallið í fyrirsát Úkraínumanna í austurhluta Úkraínu. Ef rétt reynist þá felldu Úkraínumenn tvo æðstu yfirmenn rússneska hersins í Donbas í sömu árásinni. Það verður að teljast mikil ósigur og niðurlæging fyrir Vladímír Pútín forseta.
Berdnikov var yfirmaður rússneska hersins í Sýrlandi þar til fyrir mánuði síðan. Þá var hann sendur til Úkraínu til að stýra hernaði Rússa í Donbas.
Ef rétt er að hann hafi verið felldur þá hafa Úkraínumenn fellt 12 rússneska hershöfðinga, hið minnsta, í stríðinu.
Óháðu blaðamennirnir skýrðu frá þessu á Volya rásinni á Telegram en óháðir blaðamenn, beggja megin víglínunnar, starfa hjá þessari rás.
Þeir segja að að morgni 5. júní hafi Berdnikov, sem stýrði rússneska hernum í Donetsk, hafi yfirgefið höfuðstöðvarnar og lagt af stað í vinnuferð. Kutuzov er sagður hafa verið með í för en hann var næstráðandi Berdnikov. Á leiðinni, líklegast þegar bílalest þeirra var á leið yfir brú, hafi úkraínskir hermenn ráðist á hana. Þeir eyðilögðu eða skemmdu ökutæki rússana. Einhverjum rússneskum hermönnum tókst að flýja og skiptust síðan á skotum við Úkraínumennina. Berdnikov er sagður hafa fallið í þessum átökum ásamt Kutuzov.