Kanadískur listamaður, sem gengur undir listamannsnafninu AtomicDNA, sakar Eskfirðinginn Odd Eystein Friðriksson um að hafa stolið listsköpun sinni í samstarfsverkefni við Nóa Siríus. Oddur Eysteinn, sem er betur þekktur undir listamannafni sínu Odee, tók höndum saman við sælgætisrisann og hannaði nýjan Opal-pakka sem seldur er til stuðnings Einstökum börnum. Kanadíski listamaðurinn telur pakkinn sé hreint ekkert einstakur og að hann hafi verið hlunnfarinn.
Á pakkanum umdeilda má sjá áberandi mynd af karakternum Tali-Zorah-nar-Rayya sem unnendur tölvuleikjaseríunnar Masseffect þekkja. Myndin umrædda, sem nálgast má á einni stærstu listamannasíðu heims – Devianart, er túlkun kanadíska listamannsins á tölvuleikjafígúrunni. Á Instagram-síðu AtomicDNA þar sem athygli er vakin á málinu kallar hann Eskfirðinginn „absolute twat“.
View this post on Instagram
Í færslu listamannsins á Instagram kemur fram að hann hafi teiknað þessa mynd árið 2014. Þrátt fyrir að málefnið sé gott segist hann vera afar ósáttur við gjörðir Odee sem hafi tekið verk hans traustataki og notað í eigin listsköpun. „Listamannaheimurinn er óvæginn og samkeppnin gríðarleg en það þýðir ekki að það megi taka verk annarra og gera þau að sínum, hvað þá að gera það að ferli sínum,“ skrifar AtomicDNA í Instagram-færslu.
Vísar sá kanadíski væntanlega í það að Odee hefur áður valdið usla útaf sambærilegum málum. Árið 2014 fjallaði Vísir um að honum hefði verið fleygt útaf áðurnefndri síðu – Devianart – fyrir að nýta listsköpun annarra með slíkum hætti en í kjölfarið rigndi yfir hann neikvæðum skilaboðum og hann úthrópaður sem þjófur.
Árið 2016 hótuðu svo teiknarar hjá Marvel og Disney honum öllu illu fyrir sambærilegar sakir en þá hafði Odee nýtt verk þeirra í eigið verk sem var sett upp á flugvellinum á Egilsstöðum á sínum tíma.
Í stuttu samtali við DV segir Odee að hann nenni varla að svara fyrir málið enda hafi hann margsinnis endurtekið sömu tugguna í gegnum árin. „Ég vinn verk í klippimyndastíl sem er viðurkennt listform,“ segir Odee og bendir á að ef höfundavarið vörumerki sé sett í annað samhengi sé um nýtt sjálfstætt listaverk að ræða. Um slíkt séu fjölmörg dæmi, meðal annars verk Andy Warhol og Marcel Duchamp.