Annað árið í röð herjar músaplága á íbúa Queensland-fylki Ástralíu. Í fyrra var mikið fjallað um sambærilega plágu sem var sú versta sem elstu menn muna. Olli músaplágan verulegum búsifjum í landbúnaði og vonuðust menn til að um einstakt tilvik hafi verið að ræða.
En því miður reyndust það vera falsvonir. Ástralska útgáfa News.com greinir frá því að herskarar músa herji nú á íbúa víða í fylkinu og ekki sjái högg á vatni þótt að hundruðir séu fangaðar á hverjum degi.
Sjá einnig: Músahelvíti – „Hörmungar án hliðstæðu“
Í viðtali við þarlendan miðil Courier Mail greinir Susie Capwell frá því að maður einn hafi tjáð henni að hann hafi vaknað upp við að mús var að naga hendi hans. „Ég spurði hann hvað hafði komið fyrir hendina hans og þá sagði hann mér að hann hafði vaknað upp við. Höndin hans var öll klóruð og á henni laust skinn sem greinilega hafði verið nagað,“sagði Capwell og lýsti yfir hryllingi sínum.
Fregnir af uppgangi músa eru farnar að berast úr öllum áttum innan fylkisins og óttast sérfræðingar nú að von sé á plágu af sambærilegri stærðargráðu og í fyrra sem gróft metið olli tjóni upp á um 90 milljarða íslenskra króna.