Ómar Már Jónsson, sem var oddviti Miðflokksins í Reykjavík í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum, gagnrýnir SÁÁ í nýjum pistli á Vísir.is. Undir greininni titlar Ómar sig sem náinn aðstandanda og stuðningsmann um styrk og trúverðugleika SÁÁ.
Ómar rifjar upp samskipti SÁÁ og Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) sem hafa verið í fréttum á árinu, en SÍ sakar SÁÁ um að hafa oftekið frá stofnuninni fé fyrir þjónusta sína. Gerir SÁÁ endurkröfu á SÁÁ upp á 175 milljónir króna og hefur kært samtökin til Landlæknis og héraðssaksóknara. Ómar rifjar upp málið og segir:
„Ástæðuna fyrir kærunni má rekja til þess að þegar að Covid skall á og rekstarumhverfi samtakanna breyttust ákvað stjórn SÁÁ að endurskilgreina upp á sitt einsdæmi ákvæði í samninginum sér í hag án þess að eiga samtal um það áður við Sjúkratryggingar og óska eftir endurskoðun samnings vegna breyttra forsenda.“
Ómar bendir á að í stað þess að viðurkenna mistökin hafi SÁÁ brugðist við með einkennilegum skýringum:
„Um er að ræða alvarleg stjórnendamistök og hefur verið áhugavert að fylgjast með viðbrögðum SÁÁ vegna ásakanna sem hefur verið eftirfarandi.
Ómar segir ásakanirnar grafalvarlegar og stjórn SÁÁ beri mikla ábyrgð. Byrjunin sé að viðurkenna mistökin:
„Mestu ábyrgðina á rekstri SÁÁ ber stjórn og formaður stjórnar samtakanna og við jafn alvarlegar ásakanir ber stjórn að taka fulla ábyrgð á framhaldinu. Það fyrsta er að viðurkenna alvarleg sjórnendamistök, ekki bara gagnvart Sjúkratryggingum heldur einnig gagnvart kjarnastarfsemi samtakanna, gagnvart skjólstæðingum SÁÁ. Í framhaldi ber samtökunum að leita allra leiða til að rétta af stefnuna og halda áfram því góða starfi sem samtökin eru þekkt fyrir.
Það skiptir máli fyrir okkur öll.“