Þetta kemur fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Íbúar eru hvattir til að huga að lausa- og innanstokksmunum sem geta fallið við jarðskjálfta og huga sérstaklega að því að lausamunir geti ekki fallið á fólk í svefni.
Veðurstofan hefur vakið athygli á að grjóthrun og skriður geti farið af stað í brattlendi og því rétt að sýna aðgát við brattar hlíðar.
Í tilkynningu Almannavarna segir að óvissustig þýði að aukið eftirlit sé með atburðarás sem getur á síðari stigum leitt til þess að heilsu og öryggi fólks verði ógnað. Það að lýsa yfir óvissustigi er einnig hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila.