Persónuvernd hefur sektað fyrirtækið HEI – Medical Travel um 1,5 milljónir króna. Ástæðan er sú að starfsmaður fyrirtækisins á að hafa aflað netfanga fjölda lækna með því að skrá sig inn á vef Læknafélags Íslands með aðgangi læknis sem tengdur var starfsmanninum. Upp komst um málið þegar markpóstur frá fyrirtækinu var sendur á tiltekinn lækni sem fór að grafast fyrir um af hverju pósturinn var sendur til hans. Í kjölfarið sendi læknirinn kvörtun til Persónuverndar vegna starfshátta fyrirtækisins.
HEI – Medical Travel aðstoðar Íslendinga við að komast í fegrunar-, megrunar- og tannlæknaaðgerðir utan landsteinanna en stærsti eigandi fyrirtækisins er Guðjón Sigurbjartsson, viðskiptafræðingur, sem jafnframt er framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Guðjón er áhrifamaður innan Pírata en hann hefur setið í stjórn flokksins og gegnt formennsku í félagi flokksins í Reykjavík. Þá er hann faðir Dóru Bjartar, oddvita flokksins í Reykjavík, og er sjálfur í 31. sæti framboðslista flokksins í höfuðborginni fyrir komandi kosningar.
Niðurstaða Persónuverndar var sú HEI hefði ekki haft heimild til að afla sér netfangsins, skrá það, varðveita eða nota. Þá var jafnframt komist að þeirri niðurstöðu að aðgangsbeiðni kvartanda hafði ekki verið afgreidd í samræmi við lög, en persónuupplýsingum hans var eytt eftir að aðgangsbeiðnin var lögð fram.
Eins og áður sagði á Persónuvernd að leggja 1,5 milljón króna stjórnvaldssekt á fyrirtækið. Í úrskurðinum segir að við ákvörðun sektarinnar var meðal annars horft til þess að þrátt fyrir að HEI hefði talið sér heimilt að nýta listann þá lægi ekkert fyrir í málinu sem sýndi fram á að fyrirtækið hefði gert athugasemdir við eða gengið úr skugga um að heimild stæði til öflunar netfanganna. Var brotið í öllu falli talið vera framið af stórfelldu gáleysi.