Í vikunni lak út skjal sem benti til þess að hæstiréttur Bandaríkjanna sé við það að fella niður fordæmisgildi tímamótadóms sem kallaður hefur verið Roe v. Wade sem kvað skýrt á um það á sínum tíma að réttur til þungunarrofs væri stjórnarskrárvarinn. Í kjölfar umfjöllunar um málið hefur sprottið upp mikil umræða um rétt fólks til þungunarrofs.
Umræðan hefur einnig náð hingað til lands og er Hulda Hrund Guðrúnar Sigmundsdóttir, stjórnarkona í Öfgum, ein þeirra sem hefur tekið til máls. Hennar innlegg í umræðuna er harmsaga af blóðömmu hennar, Kristínu Guðrúnu.
Þegar Kristín Guðrún var mjög ung var hún tekin af heimili sínu. „Henni og öllum systkinum hennar er skipt á bæji hér og þar. Svo giftist hún þegar hún er mjög ung og eignast tvíbura – hún er þarna í sambandi með ofbeldismanni. Þegar hún skilur við hann þá gefur hún tvíburana til ættleiðingar,“ segir Hulda í samtali við blaðamann.
„Hún er svo fengin sem vinnukona inn á bæ blóðafa míns, Finnboga. Hann ræður hana í vinnu, það er sagt að þau hafi farið að „stinga saman nefjum“ eða að hann hafi „haldið við hana“ en ég kaupi það bara ekki,“ segir Hulda og bendir á valdamismuninn milli Kristínar og Finnboga. „Hún er ráðin í það að sinna konunni hans sem var veik. Hún var bara venjuleg kona, hún hafði aldrei neitt val.“
Kristín varð ólétt eftir Finnboga og eignaðist dóttur, móður Huldu. „Finnbogi vildi strax að mamma yrði send á vöggustofu, hann vildi aldrei eiga þetta barn,“ segir Hulda. Móðir hennar fór þó aldrei á vöggustofu því amma Huldu og nafna hennar ættleiddi hana. „Tengdarmamma Huldu ömmu, hún hét frú Guðrún Jónasson og var formaður Barnaverndarnefndar. Hún reddaði þessu svona „off the books“ því Hulda amma var búin að bíða eftir barni í sex eða sjö ár.“
Einungis 6 mánuðum eftir að móðir Huldu var ættleidd lést Kristín Guðrún vegna utanlegsfósturs. Hún var aðeins 25 ára gömul þegar hún lést. Hulda vekur athygli á sögu Kristínar Guðrúnar í færslu sem hún birti á Twitter-síðu sinni. „Kaldi veruleikinn er að Kristín Guðrún átti aldrei séns. Pillan var ekki komin á markaðinn og þungunarrof voru ekki í lögleg. Þær getnaðarvarnir sem til voru fyrir konur voru ekki öruggar og smokkar, well enn þann dag i dag getur reynst erfitt að fá einstaklinga til að nota þá,“ segir hún í færslunni.
„Enginn af barnsfeðrum Kristínar tók nokkra ábyrgð. Líf þeirra hélt sinn vanagang. Blóðafi minn varð meira að segja varðstjóri í Árbæ og eignaðist stóra fjölskyldu á meðan Kristín Guðrún lá látin undir grænni torfu í ómerktri gröf.“
Þungunarrofs þráður 🧵
Ég erfði frjósemi blóðömmu minnar, Kristínar Guðrúnar. Frjósemi fyrir mér var kvöð líkt og fyrir henni. Hún varð ólétt eftir menn sem fóru illa með hana og ekki var þungunarrof í boði á þeim tíma. Hún gaf frá sér 3 börn af 4 og lést vegna utanlegsfósturs.
— Hulda Hrund 🇺🇦 (@hulda_hrund) May 3, 2022
Fjöldi fólks fer í þungunarrof vegna utanlegsfósturs en það var ekki möguleiki á tíma Kristínar Guðrúnar. „Kristín deyr út af þessu, ég er með blóðsjúkdóm sem ég erfði frá henni – við erum blæðarar. Henni blæddi út bara á örskömmum tíma, það var ekki hægt að bjarga henni,“ segir Hulda í samtali við blaðamann.
Hulda hefur sjálf nýtt sér réttinn til að fara í þungunarrof og fannst henni því erfitt að sjá fréttirnar frá Bandaríkjunum. „Maður er eiginlega bara mjög sleginn yfir þessu. Af því maður lítur á þennan rétt sem sjálfsögð mannréttindi til þess að taka ákvarðanir sem hafa afleiðingar,“ segir hún.
„Eins og í mínu tilfelli þá var það bara nauðsynlegt að fara í þungunarrof, ég hafði ekki efni á því að eiga meira en eitt barn – ég var einstæð móðir þegar ég fór í þungunarrof. Ég ætlaði ekki að enda allslaus og þetta var það besta sem ég gat gert fyrir dóttur mína.“
Hulda segir í samtali við DV að það sem situr mest í henni varðandi sögu Kristínar Guðrúnar er sú staðreynd að gröf hennar hafði verið ómerkt. „Hún hafði verið í ómerktri gröf síðan hún var jörðuð við hliðina á pabba sínum,“ segir hún.
Árið 2019 var gröf Kristínar Guðrúnar loksins merkt henni, 64 árum eftir að hún lést. „Hvíl í friði,“ stendur nú í fallegum stöfum fyrir neðan nafn hennar.