„Nei, ég þekki hann ekki. Við vorum í grunnskóla á Selfossi á sama tíma en ég hef aldrei haft nein samskipti við hann,“ svaraði Ingólfur Þórarinsson er hann var spurður í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun, hvort hann hefði haft einhver samskipti við manninn sem hann hefur stefnt fyrir dóm fyrir meiðyrði, Sindra Þór Sigríðarson.
Aðalmeðferð í máli Ingólfs gegn Sindra stendur yfir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Ingólfur var spurður hvort hann hefði einhvern tíma haft samfarir við börn undir 18 ára aldri og hann sagði svo ekki vera. Það hefði þó getað hent á þeim tíma þegar hann var sjálfur unglingur og átti kærustur á sínu reki.
Aðspurður hvort einhver hefði haldið því fram að hann hefði gert það þá sagði hann svo ekki vera. Varðandi sögusagnir um nauðganir og samræði við börn sagði Ingólfur: „Nei, aldrei. Hef þetta ekki í mér.“
Fram kom í máli Ingólfs að hann er í sambúð með konu og þau eiga von á sínu fyrsta barni í október.
Ingólfur segir að hann hafi átt erfitt með sverja af sér sögusagnir sem fóru af stað um hann síðasta sumar vegna þess að þær hafi verið óljósar og nafnlausar. Hann hafi átt erfitt með að vita hvað hann væri sakaður um. „En að ríða börnum finnst mér hljóma svo ljótt og gróft að maður getur ekki lifað við það.“
„Það voru margar nafnlausar ásakanir sem komu á einu bretti og fóru í fjölmiðlana, ég veit sannarlega ekki hvað var átt við í mörgum tilvikum.“
Margar sögur hafa verið í gangi um ósæmilega hegðun Ingólfs í félagsmiðstöðvum þar sem hann hefur verið að skemmta. Ingólfur sagðist hins vegar ekki kannast við að hafa fengið eina einustu kvörtun frá félagsmiðstöðvum vegna framkomu sinnar. „Ég veit ekki hvað ég á að hafa gert af mér þar, ef maður er söngvari uppi á sviði, er það þá óviðeigandi hegðun að horfa út í sal, það er þá hluti af einhverju akti.“
Ingólfur lýsti því að umræðan um hann sem var mjög hávær í fyrrasumar hefði skaðað hann mikið. Bókanir í tónlistarbransanum hafi fallið alveg niður og ferill hans sem tónlistarmaður stöðvast. „Margir sem hafa ráðið mig í vinnu hafa haldið að sér höndum og ekki viljað að þeirra fyrirtæki yrðu fyrir árásum,“ sagði hann.
Varðandi andleg áhrif á hann sjálfan af umræðunni sagði Ingó að hann væri svo heppinn að eiga góða vini og gott fólk í kringum sig sem styrkti hann.
Varðandi ásakanir um að hann hafi boðist til að keyra ungar stúlkur heim eftir unglingaböll sagðist hann kannski hafa einhvern tíma skutlað frænku sinni en hann kannaðist að öðru leyti ekki við þessar sögur.