Jakub M. Godzimirski, sérfræðingur hjá NUPI í Noregi, sagði í samtali við Dagbladet að margir hafi velt fyrir sér hvort Pútín sé alvarlega veikur. Það muni væntanlega ekki fást staðfest en það sé alveg öruggt að mikil valdabarátta verði meðal nánustu samstarfsmanna Pútíns þegar sú stund rennur upp að velja þurfi nýjan leiðtoga.
Klas–Göran Karlsson, prófessor í sagnfræði við háskólann í Lundi, telur að Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, sé næstur í röðinni til að taka við völdum eða Vladimir Medinsky fyrrum menningarmálaráðherra, sem fylgir sömu hugmyndafræði og Pútín.
Godzimirski sagist ekki vera sammála Karlsson hvað varðar stöðu Shoigu, staða hans hafi veikst vegna slæms gengis rússnesku hersveitanna í stríðinu og það vinni einnig gegn honum að hann sé ekki Rússi, hann er úr röðum minnihlutahóps frá Síberíu.
Godzimirski sagðist einnig telja að ef Pútín falli skyndilega frá muni það ekki verða til þess að breyta rússneskum stjórnmálum því Pútín hafi unnið hörðum höndum að því að innprenta undirmönnum sínum hugmyndafræði sína.
Magnu Christiansson, lektor í hernaðarfræði við sænska varnarmálaskólann, sagði í samtali við Expressen að hann telji að ef Pútín deyi á meðan stríðið geisar muni einhverskonar tómarúm myndast hvað varðar völdin í landinu. Í kjölfarið muni síðan fylgja valdabarátta. Á meðan muni stríðið standa í stað því enginn muni taka frumkvæðið á meðan beðið er eftir að valdajafnvægi náist aftur. Hann sagðist telja líklegast að arftakinn komu úr röðum þeirra sem eru hátt uppi í valdapýramídanum.