Átta manna hópur á vegum Vertu úti er nú í heilmiklum leiðangri í Grænlandi, en hópurinn ætlar að þvera Grænlandsjökul og er áætlað að ferðinni ljúki þann 11. maí.
Hópurinn gengur á skíðum með allan farangur sinn í eftirdragi, en liðin er um 560 km löng og verður hæst farið í tæplega 2500 metra hæf yfir sjávarmáli. Vertu úti hafa gefið uppfærslur frá ferðinni en fyrir leiðangrinum fara Vilborg Arna Gissurardóttir og Brynhildur Ólafsdóttir. Aðrir þátttakendur eru Aðalsteinn Árnason, Hermann Þór Baldursson, Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, Karen Kjartansdóttir, Sibylle Köll og Steinn Hrútur Eiríksson.
Samkvæmt nýjustu fregnum af hópnum kom hópurinn að DYE-2 ratsjárstöðinni á fimmtudag. Þar sló hópurinn upp tjaldbúðum og skoðaði stöðina. Þau fundu þó enga færa inngönguleið þrátt fyrir mikinn mokstur en allir inngangur voru á bólakafi í snjó og ís og er stöðin að sökkva í jökulinn. Vertu úti greinir svo frá aðstæðum:
„Leiðangursmönnum fannst þessar aðstæður lygilegar og líkastar því að vera í miðri vísindaskáldsögu. Svo er þarna risastór æfingaflugvöllur við hliðina en þar æfa Herkúles herflugvélar lendingar á ís.“
Á föstudeginum ákvað hópurinn að hvílast enda slæmt veður. Dagurinn var nýttur í að moka frá tjöldunum, sofa, borða og gera við föt. Þó var nokkuð sem hópurinn gekk í gegnum þann dag sem er lýst sem „ólýsanlegum hryllingi“
„Skelfilegast var að fara út og gera þarfir sínar segir í skeyti leiðangursstjóra. Enginn kom samur úr því ferðalagi. Ólýsanlegur hryllingur. Veðrið var þannig að þetta var eins og að fara á klósettið í miðjum fellibyl, krókloppinn og fenntur á kaf inn á maga og víðar.“
Á laugardag var betra veður og hélt hópurinn aftur að stað.
Hér má fylgjast með umfjöllun Vertu úti um leiðangurinn