fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Jóhann gagnrýnir Drífu og segir hana tróna á toppnum – ,,Er í raun aðeins að verja bruðlið á eigin skrifstofu“.

Guðrún Gyða Eyþórs Árnadóttir
Mánudaginn 18. apríl 2022 15:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

,,Það er ekki ónýtt að starfa á skrifstofu Alþýðusambands Íslands (ASÍ) þar sem Drífa Snædal ræður ríkjum, enn sem komið er. Laun og annar starfsmannakostnaður var vel yfir einni milljón króna á mánuði á hvert stöðugildi á árinu 2020,” skrifar Jóhann Þorvarðarson pistlahöfunur á Miðjunni

Jóhann Þorvarðarson

Hann segir Drífu tróna á toppnum með 1.250.000 krónur í laun á mánuði fyrir utan hlunnindi, sem gætu auðveldlega hækkað laun hennar vel upp fyrir 1.5 milljónir króna á mánuði. Meðallaun í landinu séu aftur á móti umtalsvert lægri en þekkist þekkist á skrifstofu ASÍ og stærsti hluti félagsmanna aðildarfélaga ASÍ eru vel undir meðallaunum. 

,,Og margir langt þar undir. Það liggur því fyrir að Drífa og fólkið á skrifstofu ASÍ deilir engan vegin kjörum þeirra sem þau vinna fyrir. Krókurinn er vel makaður. “

Reikningar óglöggir

,,Til viðbótar þá var kostnaður við rekstur skrifstofunnar 149 þúsund krónur á mánuði á sömu stöðugildi. Inn í skrifstofukostnaði er ekki húsnæðiskostnaður, útgáfu- og kynningarkostnaður, þátttaka í alþjóðastarfi, félagslegur kostnaður, félagsleg fræðsla og kostnaður við fundi og nefndarstörf.” 

Jóhann segir rekstur skrifstofunnar ekki sundurliðaðan í ársreikningi sem geri reikninga óglögga og það veki athygli hans þar sem laun og kostnaður tengdum starfsmönnum sé lang stærsti útgjaldaliður ASÍ og eðlilegt að gera honum betri skil. ,,Slíkt myndi auka gagnsæi um leið og það væri í samræmi við bestu útfærslu alþjóðlegs reikningsskilastaðals þar um.” 

Uggur hjá Drífu

Jóhann segir rekstur skrifstofunnar hafa hækkað um 19,4 prósent á milli ára og enga skýringu sé að finna í ársreikningi en þó upplýst að hækkunina megi óverulega rekja til Covid faraldursins. Því gæti verið að finna undir liðnum  ýmis fríðindi til starfsmanna eins og síma- og tölvukostnaður heima við, nettenging, fastur aksturskostnaður þó lítið sé ekið og næringu til starfsmanna svo fátt eitt sé talið til.

Jóhann segir að tjáningar Drífu um hópuppsögnina hjá Eflingu af varúð enda ekki útilokað að hún sé í raun aðeins að verja bruðlið á eigin skrifstofu. ,,Verið er nefnilega að taka á óráðsíunni á skrifstofu Eflingar og veldur það augljósum ugg hjá Drífu,”segir Jóhann í grein sinni.

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Harris hafi tryggt sér nægilegan fjölda kjörmanna til að hljóta útnefningu sem forsetaefni

Harris hafi tryggt sér nægilegan fjölda kjörmanna til að hljóta útnefningu sem forsetaefni
Fréttir
Í gær

Snorri vekur athygli á óvenjulegu stríði Krónunnar og Bónus – „Greinilega er Bónus í ákveðinni örvæntingu með þetta”

Snorri vekur athygli á óvenjulegu stríði Krónunnar og Bónus – „Greinilega er Bónus í ákveðinni örvæntingu með þetta”