„Það kom í ljós í morgun þegar einhver ætlaði að opna skjal inni á vefnum að búið var að logga viðkomandi út. Hún spurðist fyrir hjá öðrum og það kom í ljós að búið er að loka vefnum fyrir öllu starfsfólki. Þarna eru settar inn margskonar tilkynningar, til dæmis um veikindi,“ segir Inga Þóra Haraldsdóttir, fyrrverandi skjalastjóri hjá Eflingu, í stuttu spjalli við DV.
Inga greinir frá þessu í lokaðri Facebook-færslu í dag, þar sem segir:
„Nýjast í Eflingar fréttum: Í morgun vöknuðu starfsmenn við það að þau komast ekki lengur inn á innri vef skrifstofunnar, þar sem tilkynningar berast og þau geta haft samband við hvort annað og yfirmenn sína. Samt á starfsfólk að mæta í vinnu eftir páska? Hvað er í gangi?“
Inga bendir á í samtali við DV að Sólveig Anna hafi undirstrikað í Kastlóssviðtali að starfsfólkið, sem allt hefur fengið uppsagnarbréf, beri vinnuskyldu á uppsagnarfresti og ætlast sé til að það sinni störfum sínum.
Innri vefur skrifstofunnar er hins vegar nauðsynlegur hluti af vinnuumhverfinu.
„Ég ræddi þetta við lögfræðing sem sagði að þetta væri löglegt. Þetta er löglegt en algjörlega siðlaust,“ segir Inga.
Aðspurð segist hún hafa sagt upp störfum hjá Eflingu þegar núverandi meirihluti komst til valda í félaginu og viðurkennir hún að Sólveig Anna formaður og hennar fólk sé ástæðan fyrir starfslokum hennar.