Þetta kemur fram í færslu breska varnarmálaráðuneytisins á Twitter. Lengi hefur legið ljóst fyrir að hernaður Rússar í Úkraínu er víðs fjarri því að ganga eftir áætlunum þeirra. Nú virðast þeir því ætla að grípa til nýrra aðferða til að efla her sinn þar.
Varnarmálaráðuneytið segir að leyniþjónustuupplýsingar hermi að Rússar séu nú að byrja að flytja hermenn, sem eru staðsettir í öðrum ríkjum, til Úkraínu. Nú verði 1.200 til 2.000 rússneskir hermenn, sem eru staðsettir í Georgíu, sendir til Úkraínu þar sem þeir munu bætast við þrjár herdeildir.
Ráðuneytið segir einnig að það sé mjög ólíklegt að það hafi á einhverjum tímapunkti verið hluti af áætlunum Rússa að bæta við styrk sinn í Úkraínu á þennan hátt.
Fyrr í vikunni sögðu rússneskir ráðamenn að dregið yrði úr árásum á Kyiv og í norðurhluta Úkraínu og að þetta væri merki um góðan hug Rússa til að greiða fyrir samningum. Þeir sögðu einnig að rússneskar hersveitir myndu áfram vinna að „frelsun“ Donbas.
Úkraínsk stjórnvöld og bandamenn þeirra segja að þetta sé nú frekar aðferð Rússa til að endurskipuleggja sig eftir þá erfiðleika sem hersveitir þeirra hafa glímt við í Úkraínu.