Karlmaður lét lífið í gærkvöldi um kvöldmatarleytið eftir vélsleðaslys nærri Bröttubrekku á Vesturlandi. Maðurinn var einn á ferð þegar slysið átti sér stað en það voru aðrir vélsleðamenn sem áttu leið um svæðið sem komu að vettvangi. Gerðu þeir tilraunir til endurlífgunar, en þær báru ekki árangur. Lögreglan á Vesturlandi greinir frá.