Þetta er mat Jacob Nyrup, aðjunkts við Oslóarháskóla, sem rannsakar einræðisherra og einræðisríki. Í samtali við TV2 sagði hann að svo virðist sem Pútín sé að gera sömu mistök og aðrir einræðisherrar hafa gert á undan honum.
„Hann hefur verið allt of bjartsýnn. Hann er búinn að búa til sögu um að Úkraína sé hliðholl Rússum og sé haldið í járngreipum af stjórn sem er vestræn. Ég held að hann hafi trúað þessum lygum. En hann vanmat mótspyrnu Úkraínumanna og samstöðu Vesturlanda,“ sagði Nyrup.
Jakob Tolstrup, sem er lektor við stjórnmálafræðideild Árósaháskóla og rannsakar einnig einræðisherra og einræðisríki, segir að stjórn Pútíns á Rússlandi einkennist af persónulegu einræði. Það sem einkennir slíkt einræði er að einræðisherrann hefur öll völd í höndum sínum og er mjög einráður.
Bæði Nyrup og Tolstrup líktu ákvörðunum Pútíns við ákvörðun Argentínumanna um að ráðast á Falklandseyjar 1982, innrás Íraks í Kúveit 1990 og innrás Úganda í Tansaníu 1978. Þeir sögðu að í þessum tilfellum hafi einræðisherrar ofmetið styrk sinn og viðbrögðin við árásum þeirra. Á sama hátt hafi Pútín vanmetið hversu öflug viðbrögðin við innrásinni hafi verið, bæði frá Úkraínu og Vesturlöndum.
„Einræðisherrar eins og Pútín eru yfirleitt mjög öruggir í embætti en ég held að þetta hafi haft áhrif og auki líkurnar á að hann missi völdin,“ sagði Nyrup.
Bæði Nyrup og Tolstrup líktu Pútín við Saddam Hussein sem hafði byggt upp stjórnkerfi þar sem öll völdin voru á hans hendi og öll mótmæli gegn honum voru bæld niður. Hann hafi vanmetið viðbrögðin við innrásinni í Kúveit.