Hanna Katrín minnir á að aðeins séu 15 ár síðan hjúskaparlögum var breytt og samkynhneigðum var heimilað að ganga í hjónaband. Mikilvægi þessarar réttarbótar fyrir fjölda fólks sé öllum kunnugt.
„Minna fer fyrir upplifun fólks á þeim hamfaraspám sem andstæðingar lögðu áherslu á í aðdraganda breytinganna en samkvæmt þeim yrði höggvið að rótum samfélagsins þar sem konum og körlum yrði hreinlega úthýst úr hjónabandinu. Gott ef ekki stigu fram konur sem óttuðust að þær yrðu ekki lengur konur, ef samkynhneigðir fengju að verða hjón í lagalegum skilningi. Hamfarirnar urðu auðvitað ekki,“ bendir hún síðan á.
Hún bendir á að fullt sé af gagnkynhneigðum hjónum í samfélaginu og einnig hinsegin hjónum. „Samfélagið er líka áfram fullt af körlum og konum, gagnkynhneigðu fólki sem og samkynhneigðu og alls konar öðru hinsegin fólki. Frelsi og mannréttindi fyrir alla er svo grunnurinn sem við byggjum velferðarsamfélagið okkar á,“ segir hún.
Því næst víkur hún beint að grein Írisar og segir að með henni hafi verið blásið í aðra hamfaraspá vegna réttinda hinsegin fólks. „Það eru ekki hjónaböndin lengur sem ógna samfélaginu heldur trans fólk. „Ríkisvaldið á ekki að styðja ranghugmyndir fólks. Hvað þá að lögfesta þær á kostnað almennings,“ var ritað í grein hér í Morgunblaðinu fyrir helgi. Greinin fjallaði um mannréttindi, þótt augljóst hafi verið að greinarhöfundur taldi að trans fólk ætti að vera undanþegið slíkum réttindum,“ segir hún og bætir við að hér kveði við kunnuglegan tón í þeim harða áróðri sem dynur á transfólki þessa dagana.
Fullyrðingar, sem talið var að hefðu verið kveðnar í kútinn með réttindabaráttu samkynhneigðra á árum áður, kvikni aftur til lífsins: „Fullyrðingar þar sem fordómar drupu af hverju orði, þar sem samkynhneigðir voru álitnir til marks um hnignun mannkyns, eyðileggjandi menningu, trú og allt sem hægt var að telja upp heilagast, þar með talið þetta með hjónabandið sem átti að enda á öskuhaugum sögunnar ef samkynhneigðir fengju að giftast. Heimurinn var hreinlega að farast, að mati heimsendaspáfólksins.“
Hún segir síðan að staðreyndin sé sú að heiminum hafi aldrei staðið nein ógn af frelsi og að þau sem sækja nú harðast fram gegn transfólki kæri sig ekkert um lærdóm sögunnar: „Orðræðan, þessi einbeitti vilji til að hefta frelsi annars fólks, er þekkt í baráttunni gegn réttindum samkynhneigðra og annars hinsegin fólks og þar áður gegn réttindum kvenna. Og sagan er auðvitað miklu lengri. Það er heimskulegt, hættulegt og umfram allt aumt að óttast ekkert meira en frelsi og mannréttindi annarra.“