Stefán Hrafn Hagalín er hættur sem deildarstjóri samskiptadeildar Landspítalans og tekinn við sem forstöðumaður samskipta og markaðsmála Háskólans í Reykjavík. Í millitíðinni stoppaði hann stutt við á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Hann greinir frá þessu sjálfur í stöðufærslu.
Mikla athygli vakti í ágúst síðastliðnum þegar Stefán Hrafn sendi tæplega 300 stjórnendum Landspítalans bréf þar sem hann hvatti þá til að svara ekki fyrirspurnum fjölmiðla heldur beina þeim til sín. „Einnig er hreinskilnislega yfirhöfuð ágætis regla að svara bara alls ekki ekki beinum símtölum fjölmiðla,“ sagði í bréfinu og uppnefndi hann fjölmiðlafólk þar „skrattakolla“ sem fór vægast sagt illa í stéttina sem og aðra, þar á meðal ýmsa hjá Landspítalanum. Hann baðst síðar afsökunar á þessu bréfi, sagðist hafa verið þreyttur í lok erfiðs vinnudags.
Stuttu síðar var greint frá því að Andri Ólafsson hafi verið ráðinn tímabundið til að sjá um fjölmiðlasamskipti hjá Landspítalanum á meðan Stefán Hrafn færi í frí, en Andri var áður aðstoðarmaður rektors Háskóla Íslands, samskiptastjóri VÍS og fréttamaður. Seinna var tilkynnt að Stefán Hrafn væri snúinn aftur til Landspítalans en tímabundin ráðning Andra framlengd til 1. febrúar og tekið fram að Andri muni fyrst og fremst sjá um samskipti við fjölmiðla á meðan önnur verkefni væru í höndum Stefáns Hrafns.
Í stöðufærslu Stefáns Hrafns segir hann að fyrir tveimur mánuðum hafi hann ákveðið að kveðja Landspítalann og hefja störf á velferðarsviði Landspítalans við miðlun, vefstjórn og fleiri verkefni. Hann hafi síðan sótt um auglýst starf hjá HR sem hann svo fékk, og kveður því Reykjavíkurborg fyrir starfið þar.
„Á mánaðartíma hef ég þannig af fullkomnu léttlæti skilið við spítalann, hætt með borginni (sorrý Arne, Hólmfríður og Ólafía!) og byrjað með HR. Ég þarf ugglaust að biðja einhvern afsökunar á þessum tímapunkti, en þau eru sennilega svo mörg að þau verða bara að taka númer og mynda röð! Mea culpa,“ skrifar hann í færslunni.