fbpx
Sunnudagur 23.febrúar 2025
Fréttir

Telur líklegt að kórónuveiran valdi óvenju tíðum andlátum meðal eldra fólks

Kristján Kristjánsson
Fimmtudaginn 17. mars 2022 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Að undanförnu hafa andlát verið tíð á dvalar- og hjúkrunarheimilum en þess sjást vel merki í andlátstilkynningum í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu. Á sumum þessara heimila hafa COVID-19 smit komið upp.

Morgunblaðið spurði Pálma V. Jónsson, yfirlækni á öldrunarlækningadeild Landspítalans og prófessor í öldrunarlækningum við Háskóla Íslands, hvort óvenjulega mikið hafi verið um andlát eldra fólks að undanförnu og hvort rekja megi mörg þeirra til COVID-19.

Hann sagðist ekki vera með nákvæma tölfræði yfir þetta við höndina en sagði að svo virðist sem þessa dagana sé aukin dánartíðni en hann hafi ekki upplýsingar um dánarorsakir.

„Ég tel mikil líkindi fyrir því að kórónuveiran sé nú að verki og valdi þessari aukningu í ár. Þá er einnig nokkuð líklegt, að mínu mati, að dánartíðnin sé heldur meiri en í meðalári, þar sem sóttvarnir hafa verið miklar í tvö ár og fólk haldið sér til hlés. Nú er hins vegar dregið úr sóttvörnum almennt talað og smit í samfélaginu í hæstu hæðum,“ sagði hann meðal annars í skriflegu svari til blaðsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Lokaði augunum og keyrði á hringtorg

Lokaði augunum og keyrði á hringtorg
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sambýlismaður yfirmanns sorpmála var ráðinn sem ráðgjafi við breytingar á sorphirðukerfi Akureyrar – Sviðsstjóri játar mistök

Sambýlismaður yfirmanns sorpmála var ráðinn sem ráðgjafi við breytingar á sorphirðukerfi Akureyrar – Sviðsstjóri játar mistök