Hér er yfirlit yfir helstu fréttir næturinnar frá Úkraínu og málefnum tengdum innrásinni.
Volodymyr Zelenskyy, Úkraínuforseti, sagði í nótt að kröfur Rússa í samningaviðræðunum við Úkraínu séu nú orðnar raunhæfari en áður. Bjartsýni hans er samhljóma bjartsýni Mykhailo Podoljak, aðalsamningamanns Úkraínu, um gang viðræðnanna. Hann sagði á Twitter að viðræðunum verði haldið áfram í dag. Þær séu erfiðar, um ákveðin atriði séu aðilarnir algjörlega ósammála en það sé hægt að komast að málamiðlunum. Zelenskyy sagði einnig að Úkraína sé ekki á leið í NATO á næstunni. Það sé staðreynd sem þjóðin þurfi að sætta sig við.
Jaroslaw Kaczynski, varaforsætisráðherra Póllands, heimsótti Zelenskyy í Kyiv í gær ásamt forsætisráðherrum Póllands, Slóveníu og Tékklands. Eftir heimsóknina sagði hann að hann telji nauðsynlegt að senda friðargæslulið til Úkraínu. Það geti verið hermenn frá NATO eða hugsanlega enn breiðara alþjóðlegra lið. Þetta verði að vera friðargæslulið sem getur varið sig og starfað í Úkraínu. Það verði að vera vopnað en meginverkefni þess verði að veita mannúðarhjálp og friðsamlegan stuðning.
Úkraínska innanríkisráðuneytið segir að úkraínskar hersveitir hafi drepið rússneska hershöfðingjann Oleg Mitjaev í gær þegar rússneskar hersveitir gerðu áhlaup á Mariupol. Anton Gerasjenko, talsmaður ráðuneytisins skýrði frá þessu og birti mynd á skilaboðaþjónustunni Telegram af líki Mitajev. Hann er fjórði rússneski hershöfðinginn sem Úkraínumenn hafa fellt í stríðinu. Hann barðist í Sýrlandi.
Joe Biden, Bandaríkjaforseti, mun væntanlega tilkynna um meiri stuðning við Úkraínu í dag. Reiknað er með að hann muni tilkynna um 800 milljóna dollara framlag Bandaríkjanna til varnarmála í Úkraínu. Biden mun væntanlega tilkynna þetta þegar Volodymyr Zelenskyy, Úkraínuforseti, ávarpar bandaríska þingið í dag.