Þetta sagði Christopher Steele, fyrrum yfirmaður Rússlandsdeildar bresku leyniþjónustunnar MI6, í viðtali við Sky News í gærkvöldi.
Steele var starfsmaður MI6 í rúmlega tuttugu ár og stýrði aðgerðum leyniþjónustunnar í Rússlandi á árunum 2006 til 2009.
Hann sagði að alþjóðasamfélagið muni aldrei hleypa Pútín inn aftur og að stjórn hans muni að lokum falla vegna innrásarinnar. „Ég sé ekki að hann muni lifa þetta af til lengri tíma litið. Ég held að hér hafi orðið ákveðin vatnaskil,“ sagði Steele.
„Aðgerð af þessari stærð er umfram getu Rússa . . . Ég tel að hér hafi Pútín misreiknað sig illilega,“ sagði hann einnig.
Hann varaði einnig við því að slælegur árangur Rússa í stríðinu geti orðið til þess að Pútín fyrirskipi hersveitum sínum að beita enn meira ofbeldi og „handahófskenndum drápum“.
Hvað varðar hugsanleg endalok Pútín á forsetastóli sagði Steele að einræðislegur stjórnunarstíll hans geti komið í bakið á honum og að almennir borgarar og olígarkar muni finna fyrir refsiaðgerðum Vesturlanda og það auki líkurnar á að þeir snúist gegn Pútín.
„Vandinn við einræðisstjórn, eins og hann stýrir, er að gagnrýni eða umræður eru ekki leyfðar og það endar með að þú færð slæma ráðgjöf og heyrir bara það sem þú vilt heyra frá ráðgjöfum þínum. Þegar lífsskilyrði fólks byrja að versna munu mótmæli á götum úti færast í aukana í Moskvu, St. Pétursborg og fleiri borgum. Ég held að það muni eiga hlut að tilraun elítunnar til að losna við Pútín þegar þar að kemur,“ sagði hann.