Hér fyrir neðan er yfirlit yfir helstu fréttir næturinnar og verða nýjar fréttir settar inn um leið og þær berast.
Uppfært klukkan 07.30 – Utanríkisráðherrar Úkraínu og Rússlands eru komnir til Antalya í Tyrklandi þar sem þeir munu funda í dag og reyna að semja um frið.
Uppfært klukkan 07.07 – Úkraínski sendiherrann í Danmörku sagði í samtali við Danska ríkisútvarpið að 100 Danir hafi haldið til Úkraínu til að berjast gegn Rússum. Fjöldi útlendinga hefur streymt til landsins til að leggja heimamönnum lið gegn rússneska innrásarliðinu.
Uppfært klukkan 06.43 – Netverslunin Amazon er hætt að selja og senda vörur til Rússlands og Hvíta-Rússlands.
Uppfært klukkan 06.14 – Breska varnarmálaráðuneytið segir að 64 km löng rússnesk herflutningalest, sem er nærri Kyiv, hafi ekki hreyfst mikið síðustu vikuna en hafi orðið fyrir miklu tjóni af hálfu Úkraínumanna.
Uppfært klukkan 05.41 – Borgaryfirvöld í Vilnius, höfuðborg Litháens, hafa gefið götunni sem rússneska sendiráðið í borginni stendur við nýtt nafn. Hún heitir nú Gata úkraínsku hetjanna.
Uppfært klukkan 05.15 – Flóttamannastofnun SÞ segir að rúmlegar tvær milljónir Úkraínumanna hafi nú flúið land.
Uppfært klukkan 04.50 – Twitter hefur opnað útgáfu af miðlinum á hinu svokallaða Djúpneti. Það gerir rússneskum yfirvöldum erfiðara fyrir að ritskoða og hafa uppi á þeim Rússum sem nota miðilinn.
Uppfært klukkan 04.20 – Enn bætist á listann yfir þau erlendu fyrirtæki sem hafa hætt starfsemi í Rússlandi. Þar má nefna Carlsberg, Ferrari, Sony og Nintendo.
Uppfært klukkan 04.00 – Breska varnarmálaráðuneytið segir í nýrri stöðuskýrslu að líklega sé verið að senda rússneska málaliða til Úkraínu til að berjast gegn úkraínsku varnarsveitunum. Þetta séu reyndir málaliðar frá rússneskum einkafyrirtækjum sem hafi tengsl við rússnesk stjórnvöld.
Uppfært klukkan 03.55 – Heimildarmenn innan bandaríska stjórnkerfisins telja að Rússar hafi nú misst á milli 5.000 og 6.000 hermenn. Þeir telja að á milli 15.000 og 18.000 rússneskir hermenn hafi særst. CBS News skýrir frá þessu.
Uppfært klukkan 03:53 – Volodymyr Zelenskyy, Úkraínuforseti, segir að 35.000 almennir borgarar, hið minnsta, hafi verið fluttir frá Sumy, Enerhodar og svæðum nærri Kyiv í gær.
Uppfært klukkan 03.52 – Yfirvöld í Maríupol segja að tæplega 1.200 manns hafi fallið í borginni fram að þessu. Í gær var fjöldi fólks settur í fjöldagrafir.