Úkraínsk yfirvöld segjast hafa komið í veg fyrir þrjár morðtilraunir við Zelenskyy frá upphafi innrásarinnar. Úkraínsk yfirvöld eru undir hið versta búin og eru með áætlun til reiðu ef svo illa fer að Rússum tekst að ráða forsetann af dögum. Þetta er áætlun um að halda „ríkisstjórninni gangandi“.
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði þetta nýlega í samtali við CBS þegar hann var spurður hverjar afleiðingarnar geti orðið ef Rússum tekst að ráða Zelenskyy af dögum. Hann sagðist ekki vilja skýra frá áætlun Úkraínumanna að öðru leyti en að hún væri til staðar.
Zelenskyy hefur vakið aðdáun samlanda sinna og umheimsins fyrir framgöngu sína. Hann var ekki mjög vinsæll meðal þjóðar sinnar fyrir stríðið, þótti ekki vera nægilega þroskaður til að gegna embættinu. Nú er hann hins vegar táknmynd úkraínsku þjóðarinnar og þykir sýna vel hversu harðgerð hún er og einbeitt í að standa innrás Rússa af sér.
Vesturlönd hafa áhyggjur af hvað tekur við ef Zelenskyy fellur og Bandaríkin hafa boðist til að flytja hann úr landi en það boð afþakkaði hann með orðunum: „Mig vantar skotfæri, ekki far.“