Varnarmálaráðuneyti Rússlands hefur nú viðurkennt að í Úkraínu berjast Rússar sem ekki eru atvinnumenn í hermennsku heldur einnig menn sem gegna tímabundinni herskyldu, eða með öðrum orðum – menn sem ekki hafa atvinnu af hermennsku og hafa verið kvaddir til herskyldu án þess að hafa um það val.
Þetta er viðsnúningur hjá Rússum sem hafa til þessa þverneitað því að aðrir en atvinnumenn í hernaði hafi verið sendir í innrásina. Rétt rúmur sólarhringur er síðan Vladimír Pútín, forseti Rússlands, lýsti því yfir í sjónvarpsávarpi að hvorki þeir sem hafi verið kveddir í herinn til að gegna tímabundinni herskyldu, né varaliðsmenn, hafi verið sendir til Úkraínu heldur væru þar aðeins atvinnumenn í hermennsku á ferð.
Rússneski miðillinn TASS greinir frá því að Pútín hafi nú falið saksóknar hersins að kanna málið og finna þá sem beri ábyrgð á því að senda þá er gegni herskyldu til Úkraínu, og draga til ábyrgðar. Slíkt hafi gengið gegn fyrirmælum Pútíns um að aðeins atvinnumenn yrði sendir í „hernaðaraðgerðina“.
Ítrekað hafa þær fregnir borist frá Úkraínu síðan innrásin hófst að rússneskir hermenn sem úkraínski herinn hafi handsamað séu oft ungir menn sem hafi hlotið litla sem enga þjálfun. Hafa þessar fregnir vakið áhyggjur meðal rússnesku þjóðarinnar um afdrif aðstandenda þeirra sem gegni herskyldu.
Rússneska varnarmálaráðuneytið viðurkenndi enn fremur í dag að einhverjir rússneskir hermenn sem gegni herskyldu hafi verið handsamaðir af Úkraínumönnum frá því að innrásin hófst.