fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Engar skemmdir á Miðgarði í vatnselgnum – Starfsmenn bæjarins björguðu málunum

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 9. mars 2022 11:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Engar eða sáralitlar skemmdir urðu á íþróttahöllinni Miðgarði í Garðabæ vegna vatnselgs sem myndaðist við húsið í gær og flestir fjölmiðlar fjölluðu um. Í fréttatilkynningu á vef Garðabæjar kemur fram að starfsemi hússins hafi ekki raskast á neinn hátt og allar íþróttaæfingar hafi verið á áætlun í húsinu.

„Mikið vatn safnaðist saman fyrirframan húsið vegna margra samverkandi þátta. Vegna veðurs og mikilla leysinga rann vatn niður úr hlíðum Kópavogs, niður golfvöllinn og safnaðist saman á nokkrum klukkutímum. Gatnakerfið á svæðinu ásamt móttökukerfum eru enn í vinnslu enda um nýtt hverfi að ræða,“ segir í tilkynningunni.

Starfsmenn bæjarins brugðust hratt við, unnu hart að því að dæla vatni frá í alla nótt og bjarga skemmdum, og eru þeim færðar miklar þakkir fyrir. Þá segir í tilkynningunni að farið verði í mótvægisaðgerðir til að tryggja að vatnið komist sína leið næst þegar slíkt veður kemur.

Sjá einnig: Birtir myndband af því þegar það flæddi inn í höllina í Garðabæ – „Vonandi verða skemmdirnar ekki miklar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hvítt ryk hrellir bílaeigendur í nágrenni við niðurrifnu Íslandsbankabygginguna – „Bíllinn er allur þakinn“

Hvítt ryk hrellir bílaeigendur í nágrenni við niðurrifnu Íslandsbankabygginguna – „Bíllinn er allur þakinn“
Fréttir
Í gær

Hvað gerðist á bak við tjöldin sem lét Biden hætta við

Hvað gerðist á bak við tjöldin sem lét Biden hætta við
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Auðkýfingur í Trump kreðsunni svindlaði og makaði krókinn – „Ég er ríkur, ég mun sjá um ykkur“

Auðkýfingur í Trump kreðsunni svindlaði og makaði krókinn – „Ég er ríkur, ég mun sjá um ykkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Joe Biden hættur við forsetaframboðið

Joe Biden hættur við forsetaframboðið