fbpx
Miðvikudagur 12.febrúar 2025
Fréttir

Áslaug Arna braut lög með ráðningu Ásdísar Höllu – Ásdís Halla búin að sækja um starfið sem hún sinnir

Ritstjórn DV
Föstudaginn 4. mars 2022 13:49

Ásdís Halla og Áslaug Arna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, var ekki heimilt að setja Ásdísi Höllu Bragadóttur í embætti ráðuneytisstjóra til þriggja mánaða án auglýsingar.

Þetta kemur fram í nýju áliti Umboðsmanns Alþingis sem vann að frumkvæðisathugun vegna málsins.

Tilkynnt var í gær að Ásdís Halla er meðal þeirra átta sem sækja um starf ráðuneytisstjóra sem var auglýst í byrjun febrúar.

Tildrög athugunar Umboðsmanns Alþingis var frétt sem birt var á heimasíðu Stjórnarráðs Íslands í lok janúar 2022 þar sem greint var frá setningu Ásdísar Höllu í embætti ráðuneytisstjóra nýs háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis til þriggja mánaða. Athugun umboðsmanns beindist að því hvort fullnægjandi lagaheimild hafi staðið til setningar Ásdísar Höllu við þær aðstæður sem voru uppi og þá án undangenginnar auglýsingar.

Áður, nánar tiltekið í byrjun desember 2021, var tilkynnt að Ásdís Halla hefði verið ráðin verkefnastjóri við undirbúning þessa nýja ráðuneytis.

„Þetta er álit umboðsmanns sem bendir á að aðrar leiðir hefðu verið færar til að ekki væri gengið gegn ákvæðum laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Við stofnun ráðuneytisins hefði orðið  til nýtt embætti og ekki yrði séð að lögbundnar undantekningar frá því að auglýsa það laust til umsóknar, og setja tímabundið í embættið á þeim grundvelli sem ráðuneytið byggði á, ættu við um þá stöðu sem var uppi.

Þegar fyrirætlun stjórnvalda um að koma hinu nýja ráðuneyti á fót hafi legið fyrir hefði ráðherra borið að grípa til viðeigandi ráðstafana til að tryggja starfsemi þess við stofnun. Ef ekki hefði verið nægur tími til að auglýsa embættið og ljúka skipunarferli áður en ráðuneytið tæki formlega til starfa hefðu verið færar leiðir að lögum til bráðabirgðaráðstafana. Ólögfest sjónarmið um skyldur stjórnvalda til tafarlausra viðbragða við þessar aðstæður gætu ekki réttlætt ákvörðun ráðherra um tímabundna setningu ráðuneytisstjóra án auglýsingar með vísan til þeirra sjónarmiða sem ráðuneytið byggði á.

Umboðsmaður áréttar í álitinu mikilvægi þess að stjórnvöld fylgi þeim lagareglum sem gilda um veitingu opinberra starfa og embætta og virði þau markmið sem þeim er ætlað að þjóna. Það eigi ekki síst við um ráðuneyti sem fari með æðstu stjórn framkvæmdavaldsins. Hann tekur fram að ekki séu líkur á að dómstólar myndu meta setningu ráðuneytisstjórans ógilda og að embættið hafi nú verið auglýst en mælist engu að síður til þess að ráðuneytið taki framvegis mið af sjónarmiðunum í álitinu.“

Hér má lesa álitið í heild sinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Mennta- og barnamálaráðherra í mál við ríkið og krefst rúmlega tíu milljóna króna

Mennta- og barnamálaráðherra í mál við ríkið og krefst rúmlega tíu milljóna króna
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Elliði birtir sláandi tölvupóst sem hann fékk – „Skammastu þín helvítis draslið þitt“

Elliði birtir sláandi tölvupóst sem hann fékk – „Skammastu þín helvítis draslið þitt“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump vill fá úkraínskar náttúruauðlindir í staðinn fyrir hernaðaraðstoð – Verður að hafa hraðar hendur

Trump vill fá úkraínskar náttúruauðlindir í staðinn fyrir hernaðaraðstoð – Verður að hafa hraðar hendur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamaður aðstoðaður við Fardagafoss

Ferðamaður aðstoðaður við Fardagafoss