Pawel Szefernaker, varainnanríkisráðherra Póllands, segir að rúmlega 450.000 manns hafi flúið frá Úkraínu til Póllands síðan innrás Rússa hófst í síðustu viku.
Á síðasta sólarhring komu 98.000 flóttamenn til Póllands en voru 100.000 sólarhringinn þar á undan.