fbpx
Miðvikudagur 24.júlí 2024
Fréttir

Stefnuræða Biden – Sagði Pútín hafa misreiknað sig – „Hann mætti Úkraínubúum“

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 2. mars 2022 04:27

Joe Biden flutti stefnuræðu sína í síðustu viku. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joe Biden, Bandaríkjaforseti, flutti stefnuræðu sína á bandaríska þinginu í gærkvöldi að staðartíma. Hann sagði meðal annars að Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, hafi misreiknað sig þegar hann ákvað að ráðast á Úkraínu og að lofthelgi Bandaríkjanna verði nú lokað fyrir rússneskum flugvélum.

„Í gegnum söguna höfum við lært þessa lexíu – þegar einræðisherrar þurfa ekki að gjalda fyrir árásargirni sína þá valda þeir meiri ringulreið. Þeir halda áfram og kostnaðurinn og hættan sem steðjar að Bandaríkjunum og heiminum vex,“ sagði hann meðal annars.

Sky News segir að Biden hafi hrósað hugrekki Úkraínubúa, bæði hermanna og óbreyttra borgara, sem hafa varið land sitt og heimili með kjafti og klóm síðan innrásin hófst.

Hann hrósaði einnig samstöðu Vesturlanda sem hafa komið sér saman um harðar refsiaðgerðir gegn Rússum og hafa stutt Úkraínubúa með vopnum og öðrum búnaði.

„Fyrir sex dögum reyndi Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, að skekja stoðir hins frjálsa heims og hélt að hann gæti beygt hann með ógnvekjandi aðferðum. En hann misreiknaði sig hrapalega. Hann hélt að hann gæti vaðið inn í Úkraínu og að heimsbyggðin myndi velta sér á bakið. En í staðinn mætti hann þvílíkum múr að hann hefði aldrei getað ímyndað sér annað eins. Hann mætti Úkraínubúum. Allt frá Zelenskyy forseta til sérhvers Úkraínubúa, óttaleysi þeirra, hugrekki þeirra, staðfesta þeirra, veitir heiminum innblástur. Hópar borgara sem stöðva skriðdreka með líkama sínum. Allir, allt frá stúdentum til kennara á eftirlaunum hafa gerst hermenn til að verja ættjörð sína,“ sagði Biden í ræðu sinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar segir af sér vegna banatilræðisins gegn Trump – „Fullkomin vanhæfni“

Yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar segir af sér vegna banatilræðisins gegn Trump – „Fullkomin vanhæfni“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Steinari ofbýður framkoma við erlenda ferðamenn – Var seldur pilsner við Seljalandsfoss þegar þau báðu um bjór

Steinari ofbýður framkoma við erlenda ferðamenn – Var seldur pilsner við Seljalandsfoss þegar þau báðu um bjór
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð

Kvennaathvarfið nýtir gervigreind í nýrri vitundarvakningarherferð
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum

Holskefla ofbeldisbrota gagnvart börnum gæti skýrst af kórónuveirufaraldrinum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stingskatan Karlotta varð ólétt án maka – Meyfæðingin raungerðist þó ekki

Stingskatan Karlotta varð ólétt án maka – Meyfæðingin raungerðist þó ekki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sögðu móður sína ekki muna kennitöluna sína þegar hún gerði erfðaskrána sem tvístraði systkinahópnum

Sögðu móður sína ekki muna kennitöluna sína þegar hún gerði erfðaskrána sem tvístraði systkinahópnum