Danska ríkisútvarpið (DR) skýrir frá þessu. Fram kemur að meðal þeirra sem hafa kvartað undan Driscoll sé Jóhanna Katrín Friðriksdóttir fyrrum doktorsnemi við Oxfordháskóla. Í kvörtun hennar, sem DR hefur undir höndum, kemur fram að á tveggja ára tímabili hafi hún orðið fyrir áreitni af hálfu Driscoll, meðal annars á alþjóðlegum ráðstefnum og í sumarskóla sem prófessorinn var meðskipuleggjandi að. Jóhanna sagði í samtali við DR að Driscoll hafi viðhaft ummæli um brjóst hennar, fótleggi og rass. Hún kvartaði ekki þegar þetta átti sér stað en gerði það 2019 þegar margir sendu sameiginlega kvörtun.
DR hefur rætt við flesta þeirra sem hafa kvartað og aðra sem tengjast málinu. Margir vilja ekki koma fram undir nafni Jóhanna vildi það og einnig Charlotte Frantzdatter sem var nemandi við Kaupmannahafnarháskóla. Í kvörtun hennar kemur fram að Driscoll hafi hafi talað um hana sem „Charlotte með stóru brjóstin“ og að þetta hafi haft svo mikil áhrif á hana að hún neyddist til að skipta um leiðbeinanda þegar hún var að skrifa lokaritgerð sína.
DR segir að háskólinn hafi aðeins haft samband við fáa af þeim sem hafa kvartað og gagnrýna þolendurnir viðbrögð, eða öllu heldur viðbragðsleysi, skólans.
DR ræddi við Driscoll sem vildi ekki veita viðtal en svaraði skriflega og óskaði eftir að koma fram undir nafni.
Hann er prófessor við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum við Kaupmannahafnarháskóla og málvísindadeild skólans. Hann sagðist ekki vilja tjá sig um einstök mál því þau séu orðin margra ára gömul og hafi hlotið viðeigandi afgreiðslu. Hann sagðist ekki kannast við þá mynd sem sé dregin upp af samskiptum hans við nemendur og samstarfsfólk en finnist leitt ef þetta hafi verið upplifun þeirra og geti aðeins sagt að hann hafi ekki haft í hyggju að skaða neinn.
Hann sagðist hafa orðið meðvitaðri um orðanotkun sína síðustu árin, sérstaklega eftir að kvörtunin barst 2019, og húmor og að staða hans sem prófessors geti gert að verkum að ákveðið valdaójafnvægi myndist.
Stjórnendur Kaupmannahafnarháskóla vildu ekki tjá sig um málið annað en að vinna hafi staðið yfir í skólanum frá því að vinnustaðakönnun var gerð 2019.
DR vekur athygli á að Driscoll sé enn í stöðu sinni sem prófessor og hafi nýlega verið tilnefndur í námsnefnd mastersnáms við skólann og sé nú að leita sér að nýjum doktorsnema.
DR ræddi við prófessora og lektora á Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Bandaríkjunum um málið og sögðust þeir allir ráða stúdentum frá því að sækja um störf hjá Stofnun Árna Magnússonar við Kaupmannahafnarháskóla. Þess utan hafi íslensk yfirvöld tilkynnt að þau íhugi að hætta tímabundið að senda stúdenta til náms við stofnunina.