,,Þau eyddu nóttinni í bílnum í röð við landamæri Moldavíu. Það var um 7 kílómetra röð þegar þau hófu biðina en þetta gekk hægt og þau gáfust upp í morgun. Núna eru þau að reyna að finna aðra leið úr landinu, það er til dæmis styttra inn í Ungverjaland“, segir Ingibjörg Rósa Bjönsdóttir en Þorlákur Sindri bróðir hennar er á flótta frá Úkraínu ásamt Olgu konu sinni og tveimur börnum, 7 og 16 ára. Einnig eru tveir naggrísir fjölskyldunnar með í för.
Hún segir þau hafa verið heppin að komast frá Kænugarði á elleftu stundu þar sem þau hafi bókstaflega séð sprengjurnar byrja að rigna niður í baksýnisspeglinum. ,,Bróðir minn og mágkona fengu þær fréttir í gærkveldi að fjölbýlishúsið þeirra hefði orðið fyrir árásum en þau hafa ekki fengið það staðfest”.
Þreytt og stressuð
Ingibjörg Rósa segir Sindra og Olga hafa verið vel undirbúin. ,,Þau voru búin að vera tilbúin með ferðapappíra, reiðufé, mat og vatn í nokkra daga en enginn átti samt von á að þetta yrði veruleikinn. Að Pútín væri raunverlulega það klikkaður að ráðast inn og það beint á höfuðborgina”.
Að sögn Ingibjargar Rósu hafa þau ekkert fast ferðaplan annað en að reyna að komast úr landinu, fyrst hafi þau reynt að komast til Póllands, síðan Moldavíu og núna Ungverjalands. ,,Þetta gengur hægt, það er vegabréfaeftirlit úr um allt, en þau eru nú á sveitavegum og finna ekki fyrir árásum né sjá þau herlið. Þau eru aðallega þreytt og stressuð og börnunum leiðist eðlilega. Við í stjórfjölskyldunni erum með staðsetningarapp til að fylgjast með ferðum þeirra, sambandið hefur verið þokkalega gott og þau láta reglulega vita af sér. Þau eiga aftur á móti ekki von á að komast úr landi fyrir nóttina”.
Alfarið á Pútin
Olga á 14 ára strák sem er hjá pabba sínum í Kænugarði og hefur hún eðlilega miklar áhyggjur af honum svo og mömmu sinni sem varð eftir í borginni. ,,Þau eru örugg núna en hún vill auðvitað sjá hvort þau þurfa að komast úr landi”.
Ingibjörg Rósa hefur verið í sambandi við fólk víða um heim til að leita að húsnæði fyrir þau Sindra og Olgu og segir hún viðbrögðin hafa verið ótrúleg. ,,Það hafði við mig samband kona búsett á Ítalíu og bauð húsið sitt í Moldóvíu. Það er svo magnað hvað allir eru boðnir og búnir til að aðstoða. Og einnig mér áberandi hvað fólk er ekki að dæma Rússa. Hinn venjulegi Rússi ber enga ábyrgð, þetta er alfarið á Pútín og engan annan”.