Í vikunni eftir að nasistar réðust inn í Pólland birti tímaritið Time tölublað þar sem tekið var fram að seinni heimsstyrjöldin hefði hafist þann 1. september með loftárás Þjóðverja á pólska bæinn Puck.
Nú þegar sólarhringur er liðinn síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst velta margir fyrir sér hvort innrásin marki upphaf þriðju heimsstyrjaldarinnar. VOA fjallar um einmitt þetta, það er að segja hvort það sé kominn tími til að segja að þriðja heimsstyrjöldin sé hafin.
„Nei, hún er það ekki,“ segir Joshua Pollack, ritstjóri The Nonproliferation Review og fyrrum ráðgjafi bandarísku ríkisstjórnarinnar í málum sem tengjast gereyðingavopnum. „Raunverulega spurningin er hvort þetta sé upphafið að seinna kalda stríðinu. Svarið við þeirri spurningu veltir á því hversu lengi Pútín og hans stjórn heldur völdum.“
Naoko Wake, söguprófessor við Michigan State háskólann, er á sömu skoðun og Pollack. „Þetta virðist vera einn af upphafspunktum seinna kalda stríðs,“ segir hún.
Kenneth Weinstein, heiðursmeðlimur hugveitunnar Hudson Institute, er einnig á því að þriðja heimsstyrjöldin sé ekki hafin. „Við erum langt frá þriðju heimsstyrjöldinni en við erum þó mun nærri henni en fyrir sólarhring síðan,“ segir hann. Weinstein segir að þriðja heimsstyrjöldin hefjist ekki fyrr en Rússar ráðast á þjóð í Atlantshafsbandalaginu, Kína ræðst um leið á Taiwan og Íran á Sádi-Arabíu. „Þessi atburðarrás er óhugsandi en ekki ómöguleg.“
Brett Bruen, fyrrum forstöðumaður í Hvíta húsinu, tekur í sama streng og hinir og segir að of snemmt sé að tala um að þriðja heimsstyrjöldin sé hafin. „Engu að síður er augljóslega styrjöld hafin um allan heim milli lýðræðisríkja og einræðisstjórna. Þó svo að stríðið fari ekki fram á vígvellinum þá er það í gangi á netinu og í gegnum stríð á ákveðnum svæðum eins og í Úkraínu og Afghanistan.“