Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður Vísis, er gagnrýninn á ýmislegt í greinargerð Lögreglustjórans á Akureyri í Samherja- símamálinu. Jakob ræddi þetta og fleiri fréttamál á Bylgjunni í morgun.
Jakob segir að samkvæmt greinargerðinni sé ljóst að blaðamenn séu ekki grunaðir um að hafa eitrað fyrir Páli Steingrímssyni Samherjaskipstjóra né stolið síma hans. Það liggi alveg fyrir hver það gerði, umrædd mannneskja sem sögð er nákomin Páli og vera í hefndarhug. Segir Jakob að flesti viti hver það er.
Jakob segir það vera einfeldingslega ályktun lögreglustjórans fyrir norðan að slá í því föstu að fréttaflutningur Kjarnans og Stundarinnar sem byggður er á textaspjalli milli Páls og tveggja annarra aðila með tengsl við Samherja sé endilega grundvallaður á gögnum úr síma Páls. Reyndir blaðamenn viti að svona gögn geti borist með ýmsum leiðum. „Við getum alls ekki gengið úr frá því að heimildirnar séu úr síma Páls,“ segir Jakob.
Jakob staldrar sérstaklega við eftirfarandi orðalag úr greinargerðinni, sem hann segir mjög skrýtið:
„Blaðamönnum er umhugað um vernd heimildarmanna sinna. Á móti bendir ákæruvaldið á að fjölmiðlar eru að hagnýta sér viðkvæma stöðu heimildarmannsins. X kemur til þeirra á sennilega erfiðasta tímabili lífs síns, væntanlega mjög viðkvæmur og hugsanlega í hefndarhug. Í stað þess að staldra aðeins við og veita X stuðning og hjálp, virðast fjölmiðlar fara strax í að nýta sér augljós brot hans sér í hag, bæði faglega og fjárhagslega. Þeir huga ekki að því að þarna er einstaklingur í viðkvæmri stöðu og sýna af sér algjört skeytingarleysi um hans líðan og líf.“
Segir Jakob þessa afstöðu Páleyjar lögreglustjóra vera stórundarlega, hún segi að fyrsta skref blaðamanna við svona aðstæður eigi að vera að setjast niður með heimildarmanninum og veita honum sálgæslu, klappa honum á öxlina og „halló, svona gerum við ekki“. Jakob segir þetta fráleitt og segir síðan:
„Blaðamenn taka gagnapakka, öll helstu fréttamál sögunnar á byggja á gögnum sem fengin eru með ólöglegum hætti, starf blaðamanna er að vinsa út kjarnann og hismið, síðan taka þeir kjarnann og byggja sinn fréttaflutning á honum. Það er ekki um það deilt að þessi fréttaflutningur var algjörlega réttmætur. Síðan varðandi þessa grein sem sett er sérstaklega til að stöðva eltiklámshrellara, þá er sú grein einhvern veginn nýtt til að koma höggi á blaðamenn.“
Jakob segir afar óheppilegt að Bjarni Benediktsson og Brynjar Níelsson, sem séu fulltrúar framkvæmdavaldsins, hafi tjáð sig af svo miklum móð um þetta mál sem raun ber vitni. „Svo sér maður greinargerðina og maður kemst ekki hjá því að velta fyrir sér hvort annarleg sjónarmið liggi að baki,“ segir Jakob.