Þetta segir listakonan Melanie Ubaldo í samtali við blaðamann vegna fréttar sem birtist á forsíðu DV fyrr í dag. Fréttin sem um ræðir fjallaði um skilaboð sem skrifuð hafa verið á glugga í Fellahverfinu í Breiðholti en á gluggunum stendur „Farðu til fjandans helvítis útlendingaskíturinn þinn“ í stórum hvítum stöfum.
Skilaboðin vöktu töluverða athygli hjá íbúum Breiðholtsins. Mynd af skilaboðunum var deilt í Facebook-hópinn Íbúasamtökin betra Breiðholt og þar furðaði fólk sig á þeim. „Hvað er í gangi?“ spurði íbúinn sem deildi myndinni og í athugasemdunum furðar fólk sig á þessu sömuleiðis. „Þetta er bara bilun,“ sagði svo annar íbúi í athugasemd við myndina.
Melanie tók eftir fréttinni og hafði samband við DV í kjölfarið þar sem hún er sú sem skrifaði skilaboðin á gluggana. Skilaboðin eru í raun ádeila, Melanie ólst upp í Fellahverfinu og fékk iðulega að heyra skilaboð sem þessi þegar hún ólst þar upp.
„Um leið og eitthvað sem gerist í einrúmi – eins og við vitum alveg að svona rasískar orðræður eiga sér stað – er varpað svona hátt í almenningsrými þá hugsar fólk „vá hvað þetta er ljótt“. Ég er að endurheimta þetta og sjá til hvort það verði einhvers konar losun sem gerist fyrir mína parta,“ segir hún í samtali við blaðamann.
Skilaboðin á gluggunum eru hluti af listasýningu á vegum Melanie sem er í húsinu sem málað var á. „Þetta er partur af einkasýningunni minni hjá Listaháskólanum. Allir sem eru í útskriftarárgangnum í mínum bekk eru að gera svona einkasýningar. Þetta er partur af sýningunni minni, það er líka sýning inni en ég nota gluggana til að færa sýninguna lengra inn í hverfið,“ segir hún.
Sýningin opnaði síðastliðinn laugardag og er opin fram á föstudag. Hún er opin 12-15 alla daga en textaverkið á gluggunum er auðvitað sjáanlegt utan opnunartímans.