Ástin svífur yfir vötnum um þessar mundir og ákvað Pósturinn að leggja sitt af mörkum og aðstoða Amor við að hugsanlega kveikja smá ástarbál í brjósti þjóðar. Settur var á laggirnar hjartnæmur Valentínusarviðburður þar sem fólk er hvatt til að skrifa ástarbréf og póstleggja frítt.
Samkvæmt frétt á vef Fréttablaðsins hefur Pósturinn hefur sett upp hjartalaga póstkassa í Kringlunni ásamt kortum og þar gefst fólki tækifæri á að skrifa og senda ástarbréf. Að auki standa nú yfir dagar í Kringlunni sem bera yfirskriftina ,,Allt fyrir ástina“ þannig þar er mikið um að vera og hjartapóstkassinn passar vel þar inn.
,,Okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt í kringum Valentínusardaginn og ákváðum að gefa tveimur gömlum póstkössum nýtt líf með því breyta þeim í hjarta, og þannig fæddist hugmyndin. Við bjóðum því öllum hjartaknúsurum landsins að senda ástarbréf frítt með Póstinum um helgina og á Valentínusardaginn en um leið viljum við bara hvetja alla til að senda falleg skilaboð á ástvini sína í hvaða formi sem það er“ segir Vilborg Ásta Árnadóttir, markaðssérfræðingur hjá Póstinum.
,,Hér áður fyrr voru bréfsendingar mjög vinsæl leið meðal fólks til að tjá ást sína hvert á öðru en í tæknivæddum nútímaheimi eru ótal leiðir til að koma ástarjátningum og öðrum skilaboðum frá A til B. Við lítum þessa þróun jákvæðum augum en bréfin eiga sér langa sögu innan Póstsins og það er eitthvað svo mikil nostalgía í því að skrifa og fá handskrifuð bréf, tala nú ekki um ef það er einlægt eða eldheitt ástarbréf!” segir Vilborg.
Fólk getur sett bréfin í hjartalaga póstkassann í Kringlunni eða skilað þeim á aðra afgreiðslustaði Póstsins um allt land út mánudaginn.