Hlaðvarpsstýran Edda Falak sagði í viðtali við morgunútvarp Rásar 2 í morgun að auglýsing hennar eftir reynslusögum kvenna um ónefndan vændiskaupanda, sem hún birti í opnum Facebookhópi, hafi ekki falið í sér áform um viðtal í hlaðvarpi hennar. Hún segir að kona hafi leitað til hennar með reynslusögu sína og sagt henni að fleiri konur hefðu reynslu af kynnum við sama mann. Edda segir að hún hafi ekki verið að auglýsa eftir fólki í viðtal með þessari tilkynningu né gefa fyrirheit um birtingu viðtals við þessa konu en hún skilji eftir á að fólk hafi talið svo vera.
Edda hefur fengið á sig harða gagnrýni í kjölfar þess að sterkur orðrómur vaknaði um að maðurinn sem hún hefði í huga væri Kári Stefánsson, forstjóri ÍE. Orðrómurinn varð að deiluefni innan stjórnar SÁÁ sem leiddi til þess að bæði Kári og samstarfskona hana, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, sögðu sig úr stjórninni og Þóra hætti við formannsframboð á síðustu stundu.
Edda hefur meðal annars fengið ofbeldis- og líflátshótanir í kjölfar þessarar umfjöllunar. Ekki er á hreinu hvort um er að ræða hótanir í einkaskilaboðum eða kommentakerfum fjölmiðla. Tekið skal fram að við yfirferð ritstjórnar DV hafa ekki fundist slík ummæli í kommentakerfi DV en einnig ber að hafa í huga að oft er erfitt að greina á milli ummæla sem birtast á Facebook og þeirra sem skrifuð eru inn í kommentakerfið.
Eva Hauksdóttir lögmaður hefur hvatt Kára Stefánsson og Björn Inga Hrafnsson til að kæra Eddu fyrir meiðyrði þar sem ljóst er af lýsingu hennar að hún getur aðeins átt við um annan hvorn þeirra. Edda sagði hins vegar á Rás 2 að lýsingin gæti átt við marga fleiri.
Aðspurð hvort Kári eða Björn Ingi hefðu hótað henni meiðyrðamáli sagði hún svo ekki vera. Hún sagði hins vegar að annar þeirra hefði haft samband við sig vegna málsins en vildi ekki upplýsa hvor né hvað þeim hefði farið á milli.
Edda varð spurð hvort hún óttaðist um öryggi sitt vegna hótana sem henni hafa borist sagðist hún reyna að lifa ekki í ótta en dæmi væru um að fólk sem hefði látið illa á netinu fremdi voðaverk í kjölfarið, t.d. hryðjuverkamenn. Hún hafi því velt því fyrir sér hvort hún þyrfti að fá sér neyðarhnapp.
Aðspurð hvort von væri á viðtali í hlaðvarpi hennar varðandi ónefnda vændiskaupandann sagði Edda: „Ekkert endilega, við sjáum hvernig þetta þróast.“