fbpx
Laugardagur 08.febrúar 2025
Fréttir

Sara Dögg ósátt með „tímabundnu reddingarnar“ – „Allt í boði Sjálfstæðismanna“

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 7. febrúar 2022 18:00

Sara Dögg Svanhildardóttir - Mynd: Fréttablaðið/Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þann 8. júní árið 2021 var mikill gleðidagur í Garðabæ. Þá var vinningstillaga á hönnun nýs leikskóla í Urriðaholti kynnt. Þarna skyldi rísa 6 deilda leikskóli ætlaður 120 börnum 12 mánaða og eldri. Allt klappað og klárt og næsta skref að undirbúa útboðsgögn og koma byggingunni í framkvæmd því ekki veitti af. Og enn veitir ekki af.“

Svona hefst pistill sem Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi Viðreisnar í Garðabæ, skrifar en pistillinn birtist á Vísi fyrr í dag. Sara segir í pistlinum að enn bóli ekkert á útboðsgögnum fyrir leikskólann.

„Á meðan beðið er eftir þeim tefst framkvæmdin og nú orðið afar ólíklegt að hún geti hafist, héðan af fyrr en undir lok þessa árs. í frétt á heimasíðu Garðabæjar, þegar vinningstillagan var kynnt, kom fram að leikskólinn eigi að hefja starfsemi sína á þessu ári. Með þennan meirihluta einan við ákvarðanaborðið verður trúlegast ekkert af því. Við verðum heppin ef framkvæmdir verða hafnar,“ segir hún.

Til að fá nánari upplýsingar um stöðuna á leikskólanum hefur Sara lagt fram fyrirspurn um málið þar sem hún óskar eftir tímalínu um framgang verkefnisins.

„Allt í boði Sjálfstæðismanna“

Sara bendir á að leikskólabörnum á svæðinu hefur fjölgað mikið. „Í desember 2021 voru skráðir íbúar í Urriðaholti á aldrinum 0-5 ára 292. Leikskólinn sem fyrir er er löngu sprunginn,“ segir hún.

„Gert var ráð fyrir 120 börnum í 6 deildum en í vetur voru þar tæplega 170 börn. Hægt er að koma fleiri börnum að á leikskóla með því að þrengja verulega að grunnskólanum. Allt í boði Sjálfstæðismanna.“

Hún segir núverandi meirihluta ekki laga málið heldur einungis bjóða fram „tímabundnar reddingar á reddingar ofan“. Hún segir að enn á ný eigi að koma fyrir færanlegum einingum. „Þarna bætist við aukinn kostnaður sem meirihlutinn telur sér einhvern veginn til tekna í allri umræðu um ábyrga fjármálastjórn. Svona getur hlutum verið snúið á haus.“

Segir glansmyndina ekki standast

Þrátt fyrir að leikskólinn verði ekki tilbúinn á næstunni þá eru barnafjölskyldur að flykkjast í hverfið samkvæmt Söru. „Þær sjá fyrir sér í hillingum framúrskarandi þjónustu sveitarfélagsins, þar sem leikur einn er að koma börnum inn á leikskóla. Það er glansmyndin sem þeim hefur verið seld en stenst ekki,“ segir hún.

„Urriðaholtið er mjög eftirsóknarvert hverfi, þar sem er að skapast frábært 15 mínútna hverfi, með fjölbreytta verslun og þjónustu að færast í aukana með hverfiskaffihúsi og glæsilegum veitingastað. Allt í göngufæri og áður en við vitum af hefur fyrsti snjallkaupmaðurinn á horninu hafið starfsemi sína.“

Sara segir ákvarðanir meirihlutans um forgangsröðun í bænum hafa veruleg áhrif á ímynd Urriðaholtsins. „Það hefur áhrif að í stað framúrskarandi þjónustu og leikskólapláss við 12 mánaða aldur í umhverfisvottaða hverfinu eru brostnar vonir og flækjur við að koma börnum í leikskóla eða til dagmóður staðreynd,“ segir hún.

Að lokum segir Sara að það sé hægt að snúa þessu við ef viljinn er fyrir hendi. „Við sem tölum fyrir því að tryggja framúrskarandi þjónustu við íbúa hljótum að meina það sem við segjum og segja það sem við meinum. Það gerum við í Viðreisn að minnsta kosti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 15 klukkutímum

Ævintýralega löng flugferð frá Tenerife til Akureyrar: Enduðu í Glasgow eftir átta tíma flug – Mikið klappað þegar vélin loksins lenti

Ævintýralega löng flugferð frá Tenerife til Akureyrar: Enduðu í Glasgow eftir átta tíma flug – Mikið klappað þegar vélin loksins lenti
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Elín: „Ég er þreytt á að finnast ég þurfa að réttlæta og verja starfið mitt”

Elín: „Ég er þreytt á að finnast ég þurfa að réttlæta og verja starfið mitt”
Fréttir
Í gær

Svona er Donald Trump sagður ætla að stöðva stríðið í Úkraínu

Svona er Donald Trump sagður ætla að stöðva stríðið í Úkraínu
Fréttir
Í gær

Staðfesta átta ára fangelsis­vist yfir Mohamad

Staðfesta átta ára fangelsis­vist yfir Mohamad
Fréttir
Í gær

Jón Gnarr fær þingsæti þrátt fyrir skilorðsbundinn dóm – Tvíhöfði truflaði Alþingi með gríninnslagi

Jón Gnarr fær þingsæti þrátt fyrir skilorðsbundinn dóm – Tvíhöfði truflaði Alþingi með gríninnslagi
Fréttir
Í gær

Árásin í Svíþjóð: „Þið ættuð að yfirgefa Evrópu“ – Sýrlendingar meðal þeirra sem létust

Árásin í Svíþjóð: „Þið ættuð að yfirgefa Evrópu“ – Sýrlendingar meðal þeirra sem létust
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Vendingar í rannsókn dularfyllsta morðmáls Evrópu – Böndin beinast að tæpum svissneskum sérsveitarmanni

Vendingar í rannsókn dularfyllsta morðmáls Evrópu – Böndin beinast að tæpum svissneskum sérsveitarmanni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Brynjar Karl birtir myndband sér til varnar – „I rest my case, your honor!“

Brynjar Karl birtir myndband sér til varnar – „I rest my case, your honor!“