Benedikta Sörensen, doktorsnemi í forvörnum gegn kynbundnu ofbeldi, er hugsi eftir umræðu síðustu viku um kyrkingar í kynlífi og fræðslu um kyrkingar fyrir ungmenni. Hún birtir á Vísir.is í dag greinina „Af klámi, kyrkingum og kynfræðslu: Má læra af umræðunni?“
Benedikta gerir að umtalsefni hvernig tekist var í vikunni „fyrir hönd tveggja viðkvæmra hópa, þau sem eru BDSM hneigð og svo þau sem hafa verið beitt ofbeldi í kynlífi.“ Að hennar mati þurfa báðir hópar ást og stuðning, og hún segir að stóra spurningin sé hvort hægt sé að veita þessum hópum kyn- og ofbeldisforvarnarfræðslu saman.
„Það er mikilvægt að eiga opið og heiðarlegt samtal við unglinga um kynlífið sem þau stunda, ekki það sem okkur finnst að þau ættu að stunda. Svara spurningunum sem þau hafa án þess að dæma þau eða valda þeim skömm og líka án þess að triggera þau sem eiga að baki erfiða reynslu,“ segir Benedikta.
Að hennar mati er vel hægt að eiga opið samtal um kynfræðslu án þess að ræða sérstaklega tækni. Þá veltir hún upp nokkrum spurningum: „Gæti verið að kinký unglingurinn í hópnum græði meira á að heyra stöfunum B D S og M skeytt saman en að fá kennslu í tækni? Eða gæti orðið til falskt öryggi ef unglingar telja sig kunna eitthvað sem þarf í raun mikla æfingu fyrir, eins og t.d. kyrkingar?“
Þá segir hún: „Mainstream klám, það klám sem börn og unglingar hafa aðgang að ókeypis, er í flestum tilfellum ofbeldisfullt og t.d. oftast mun grófara en BDSM klám.“
Benedikta segir að íslenskir strákar horfi mikið á klám og þar fái þeir skilaboð um hvers sé ætlast til þeirra af kynlífi, og þau séu að ofbeldi og valdbeiting eigi heima í kynlífi. Stelpum hafi síðan í gegn um tíðina kennt að vera kurteisar og segja já en ekki nei, og þær eigi að vera þjónandi í kynlífi. „Samspil þessara þátta er hættulegt,“ segir hún.
„Það þýðir að sjálfsögðu ekki að stelpur geti aldrei gefið samþykki sitt fyrir kinki, fílað það og viljað. Að halda öðru fram gerir lítið úr okkur öllum. Það þýðir hins vegar að það er ekki alltaf einfalt og að það eru ekki bara BDSM hneigð eða kink elskandi ungmenni sem eru að stunda kyrkingar. Það eru líka þau sem telja það vera leið til að uppfylla sín kynjahlutverk og eru í vanda, þurfa hjálp og stuðning fullorðna fólksins í samfélaginu,“ segir Benedikta.