Þegar listakonan Sunneva Ása Weisshappel var 22 ára gömul varð hún fyrir heilsufarslegu áfalli sem orsakaði ofsakvíða hjá henni. Í útvarpsþættinum Lestinni á Rás 1 segir hún frá því hvernig hún sigraðist á ofsakvíðanum með listinni.
Sunneva segir að hún hafi uppgötvað að hún þurfti að framkvæma það sem hún óttaðist í raunveruleikanum. Hún fór því af stað með tuttugu gjörninga þar sem hún notaðist við kindablóð og kindafitu og bjó til málverk og skúlptúra. Á þessum tíma gat Sunneva ekki séð blóð án þess að falla í yfirlið og fá kvíðakast yfir dauðanum og því sem tengist honum.
Hún segist hafa gert þetta til þess að framkalla kvíðaköst hjá sér. „Í þessu ferli bæði lækna ég mig af ofsakvíða, hef ekki fengið ofsakvíðakast síðan, og ég uppgötvaði eitthvað tungumál í listinni. Ég upplifði minn sannleika,“ segir hún.
Eftir að Sunneva tókst á við ofsakvíðann með þessum hætti ákvað hún að takast á við innilokunarkennd. Hún ákvað að drekkja sér í sykri með hjálp vinkvenna sinna í gjörningi sem nefnist Sugar Wounds.
Lesa meira: Sugar Wounds: „Heimur sem leitast við að ögra skilningarvitum og hugarheimi áhorfandans“
Sunneva lokaði sig inni í kassa úr plexigleri og svo helltu vinkonur hennar yfir hana sykrinum fyrir framan hundrað manns. Í miðjum gjörningnum fékk Sunneva kvíðakast en það hafði ekki gerst áður í miðjum gjörningi.
Hún snéri sér þá að bestu vinkonu sinni og biður hana um að hætta að hella sykrinum yfir sig. „Hættu, opnaðu kassann og hleyptu mér út,“ sagði hún við vinkonu sína en hún neitaði. „Sunneva, þú ert ekki að fara út úr þessu, ég er ekki að fara að hleypa þér út,“ sagði vinkonan.
Vinkonurnar hættu þó að hella sykrinum á meðan Sunneva náði að róa sig niður. „Ég tók stjórn á sjálfri mér inni í aðstæðum og svo héldu þær áfram. Ég er mjög fegin að hún bannaði mér að fara út. En þarna ætlaði ég að bugast. Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef algjörlega bugast inni í aðstæðum en þarna var besta vinkona mín sem hjálpaði mér að komast í gegnum þetta,“ segir hún.