Fréttablaðið skýrir frá þessu. „Ég get staðfest að tveir fangaverðir hafi orðið fyrir alvarlegri líkamsárás á Hólmsheiði um helgina. Þeir voru fluttir með sjúkrabíl á sjúkrahús þar sem gert var að sárum þeirra,“ sagði Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofnunar í samtali við Fréttablaðið.
Hann sagði að starfsfólk i fangelsinu hafi brugðist við þessu af yfirvegun og úrvinnsla málsins af þess hálfu hafi verið til fyrirmyndar.
Lögreglunni var strax tilkynnt um málið og kom hún á vettvang og tók skýrslur af vitnum.
Fangaverðirnir hafa báðir verið útskrifaðir af sjúkrahúsi og sagðist Páll vonast til að þeir hljóti ekki varanlegt mein af árásinni.
Hann vildi ekki tjá sig um aðdraganda málsins að öðru leyti en að hann hafi verið mjög skammur og komið starfsfólki fangelsisins mjög á óvart.
Fanginn, sem réðst á fangaverðina, hefur verið fluttur frá Hólmsheiði í annað fangelsi.
Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu félags fanga, sagði málið mjög dapurlegt. Fangelsið sé ekki nægilega vel búið til að tryggja öryggi fanga og fangavarða. „Fangelsin eru ekki nógu vel mönnuð og húsnæðið, þótt nýtt sé, er alls ekki nógu gott og ekki hannað til að koma í veg fyrir svona uppákomur,“ sagði hann.