Viðtal DV við rithöfundinn Braga Pál fyrr í dag vakti gífurlega athygli og mikil viðbrögð. Í dag var kunngjört hvaða listamenn hljóta starfslaun í ár og er Bragi Páll ekki á þeim lista. Hann átti eina af vinsælustu skáldsögum síðasta árs, Arnaldur Indriðason deyr. Bragi Páll er afar ósáttur við að hafa ekki fengið starfslaun og hann er ósáttur við þann skort á fyrirsjáanleika og gagnsæi sem einkennir ákvarðanir um úthlutanir starfslauna til rithöfunda.
„Ég á tvö börn og íbúð og bíl sem þarf að borga af. Það er ekki hægt að lifa svona. Ekki hægt að bjóða heilli starfsstétt upp á að lifa í byrjun hvers árs í óvissu um hvort viðkomandi sé á launum það árið,“ sagði Bragi Páll einlægur. Segir hann tíðindi dagsins vera mikið bakslag og koma í veg fyrir að hann geti haldið ritstörfum áfram.
Greinin vakti mikil viðbrögð í ummælakerfi DV og þarf senda margir Braga Páli kaldar kveðjur. Þar má lesa ummæli á borð við þessi:
„Þá finnurðu þér bara vinnu eins og 96% Íslendingar gera eða eitthvað annað.“
Og þessi:
„Hræsnin gæti ekki orðið meiri. Hér höfum við mann sem talar gegn þingmönnum og segir þá hanga á spenanum (sem ég er allveg sammála) en fer í freakout þegar speninn er rifinn af honum.“
Er þetta aðeins lítið brot af þeim neikvæðu ummælum sem Bragi Páll fær yfir sig frá virkum í athugasemdum. En hann svarar fyrir sig og lætur virka í athugasemdum ekki eiga neitt inni hjá sér. Segir Bragi Páll jafnframt að eftirfarandi ummæli séu fyrsta innlegg hans fyrr og síðar í kommentakerfi:
„Til að svara öllum aumingjunum í kommentakerfinu þá hef alltaf starfað annað samhliða skriftum, sem blaðamaður og sjómaður, bara svo þið getið örugglega troðið ömurlegum skoðunum ykkar upp í rassgatið á ykkur.“