Fyrr í dag var greint frá því að rannsóknarblaðamaðurinn og fréttamaðurinn Helgi Seljan hefur sagt skilið við RÚV. Hann hefur nú verið ráðinn rannsóknarritstjóri hjá Stundinni, en um nýtt hlutverk er að ræða sem hefur ekki verið til staðar hjá miðlinum fram að þessu. Mun Helgi hefja störf 15. febrúar næstkomandi.
Samhliða þessu mun annar ritstjóri Stundarinnar, Jón Trausti Reynisson, stíga til hliðar og verður eingöngu framkvæmdastjóri útgáfufélags Stundarinnar og blaðamaður á ritstjórn. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir verður framvegis ein aðalritstjóri miðilsins.
Stundin greinir frá ráðningu Helga þar sem ferill hans er rakinn.
„Helgi hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín hérlendis og erlendis, meðal annars þrenn blaðamannaverðlaun Íslands og 9 tilnefningar til sömu verðlauna. Helgi hefur oftast allra, eða fjórum sinnum, verið valinn sjónvarpsmaður ársins á Edduverðlaunahátíð íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar.
Feril sinn í fjölmiðlum hóf Helgi á héraðsfréttablaðinu Austurglugganum árið 2002 en fór þaðan á DV, Talstöðina og svo fréttastofu Stöðvar 2, áður en hann gekk til liðs við Kastljós RÚV árið 2006, þar sem hann starfaði allt þar til fréttaskýringaþátturinn Kveikur varð til árið 2017.“
Stundin tekur fram að Helgi hafi tekið tekið þátt í og leitt rannsóknir og umfjallanir um nokkur af stærstu fréttamálum síðustu ára, þar á meðal Panamaskjölin og Samherjaskjölin.