Líkt og DV greindi meðal annarra frá í gær tekur gul viðvörun veðurstofunnar gildi vegna hávaðaroks og mikillar úrkomu á gjörvöllu Suður-, Vestur- og Norðvesturlandi í dag. Fyrir þá allra áttavilltustu er höfuðborgarsvæðið einhverstaðar á Suðvesturlandi og gul viðvörun þar líka.
Þegar er farið að rigna allnokkuð á höfuðborgarsvæðinu. Eftir því sem líður á daginn eykst úrkoman í borginni og tekur að rigna með fram strandlengjunni sunnan til og á vesturlandi.
Gulu viðvaranirnar taka svo gildi klukkan 21:00 í kvöld.
Verður þá strax farið að blása allhressilega í Vestmannaeyjum, og spáir Veðurstofan 23 m/s á Stórhöfða strax eftir kvöldmat.
Á miðnætti verður orðið dýrvitlaust veður í borginni, á Suðurnesjum, með fram vesturströnd og á sunnanverðum Vestfjörðum.
Versta veðrið mun svo ganga yfir í nótt og færist stormurinn norð- og norðvestur yfir landið.
Klukkan átta í fyrramálið verður það allra versta gengið niður sunnan og vestan til og jafnvel sól farin að skína ofan í rokið í borginni.
Bálhvasst verður þó fram eftir degi og má gera ráð fyrir erfiðum akstursskilyrðum á fjallvegum milli Suður- og Norðurlands sem og á Vestfjörðum. Verður þá jafnframt farið að rigna allhressilega og blása á Austurlandi.
Annað kvöld verður svo líklega hægt að lýsa yfir stormleysi um allt land, sem verður þá að öllum líkindum nokkrum trampólínum og grillábreiðum fátækara.
Veðurhorfur næstu daga þokkalegar. Hiti um frostmark og logn.